Loftgæðamál í Kópavogi
Málsnúmer: 1303358
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 36. fundur
Frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dags. 12. september, lagt fram svar við erindi Kópavogsbæjar dags. 14. janúar 2016. Jafnframt er lagt fram erindi Kópavogsbæjar til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, dags. 14. janúar 2016.
02
Bæjarráð - 2928. fundur
Frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dags. 12. september, lagt fram svar við erindi Kópavogsbæjar dags. 14. janúar 2016. Jafnframt er lagt fram erindi Kópavogsbæjar til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, dags. 14. janúar 2016.
Lagt fram.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 88. fundur
Greint frá stöðu mála.
Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar voru lagðar fram upplýsingar sem sýna aukinn styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti í Lækjarbotnum 2015 og fyrstu þrjá mánuði ársins 2016. Fram kom að Ventusmenn séu hættir störfum og að ekki fáist ný gögn varðandi mælingar frá OR.
Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir upplýsingum frá Umhverfisstofnun í samræmi við 514/2014 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti verði tryggð og á hvern hátt Umhverfisstofnun hyggt framfylgja eftirfylgni með styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti.
04
Bæjarráð - 2862. fundur
Í kjölfarið mikillar brennisteinsmengunar sem mælst hefur undanfarið á höfuðborgarsvæðinu vill Umhverfis- og samgöngunefnd ítreka fyrirspurn til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um forsendur hækkunar á mörkum tilkynningaskyldu brennisteinsvetnis í andrúmslofti.
05
Umhverfis- og samgöngunefnd - 84. fundur
Í kjölfarið mikillar brennisteinsmengunar sem mælst hefur undanfarið á höfuðborgarsvæðinu vill Umhverfis- og samgöngunefnd ítreka fyrirspurn til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um forsendur hækkunar á mörkum tilkynningaskyldu brennisteinsvetnis í andrúmslofti.
06
Umhverfis- og samgöngunefnd - 82. fundur
Lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa dags. 5.1.2017 varðandi loftgæðamælingar í Lækjarbotnum fyrir árið 2015 í samræmi við niðurstöður fundar með fulltrúum Heilbrigðiseftirlits Hafnafjarðar- og Kópavogssvæðis um loftgæðamælingar í Lækjarbotnum fyrir árið 2015 og loftgæði í Kópavogi.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að senda ítrekun á erindi til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um að fá svör við erindi sent í janúar 2016 um að rökstuðning og þær forsendur sem voru fyrir hækkun á tilkynningarmörkum á styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti til að geta tekið upplýsta ákvörðun um búsetu, skóla- og leikskólahald í Lækjarbotnum.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að leita tilboða í loftgæðamælistöð og veðurstöð og skila til nefndarinnar fyrir næsta fund.
07
Umhverfis- og samgöngunefnd - 80. fundur
Gert grein fyrir stöðu mála.
Greint frá stöðu mála.
08
Umhverfis- og samgöngunefnd - 79. fundur
Greint frá stöðu mála.
Greint frá stöðu mála.
09
Bæjarráð - 2819. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 7. apríl, lagt fram til upplýsinga bréf til umhverfis- og auðlindaráðuneytis þar sem erindi sviðsstjóra umhverfissviðs frá 14. janúar sl., þar sem óskað er eftir upplýsingum um loftgæði, er ítrekað.
Lagt fram.
10
Umhverfis- og samgöngunefnd - 75. fundur
Lögð fram skýrsla Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis um Loftgæðavötkun Dalsmára í Kópavogi árið 2015 ásamt erindi um ítrekun upplýsingar varðandi styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og minnisblaði dags. 6. apríl 2016.
Umhverfis- og samgöngunefnd vekur athygli á styrk brennisteinsvetnis í loftgæðamælingum það sem af er árinu 2016 í Lækjarbotnum. Jafnframt lýsir nefndin áhyggjum sínum af að styrkur brennisteinsvetnis virðist hafa hækkað í stað þess að lækka í takt við niðurdælingu verkefnisins við Hellisheiðavirkjun. Svo virðist sem styrkur brennisteinsvetnis hafi ítrekað farið út yfir umhverfis- og tímamörk.
11
Umhverfis- og samgöngunefnd - 71. fundur
Lögð fram drög að fyrirspurnarbréfi til Umhverfis- og auðlindaráðuneytsins varðandi loftgæði í Kópavogi og reglugerð nr. 514/2010 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti sem tóku gildi 1.7.2014 og breytingu á reglugerð 514/2010 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti 14.7.2014.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir drög að bréfi til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
12
Umhverfis- og samgöngunefnd - 70. fundur
Hólmfríður Sigurðardóttir umhverfisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Bjarni Már Júlíusson forstöðumaður tækniþróunar hjá Orku náttúrunnar gera grein fyrir framvindu SulFix verkefnisins og svara fyrirspurnum.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Hólmfríði Sigurðardóttur, umhverfisstjóra Orkuveitu Reykjavíkur og Bjarna Má Júlíussyni, forstöðumanni tækniþróunar hjá Orku náttúrunnar fyrir kynninguna og svör við fyrirspurnum.
13
Umhverfis- og samgöngunefnd - 69. fundur
Greint frá stöðu mála.
Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir því að fulltrúar Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Orkuveitu Reykjavíkur mæti á fund nefndarinnar 20. 10.2015 og upplýsi nefndina um stöðu og framvindu Sulfix verkefnisins og áætlana um aðlögun að reglugerð 514/2010 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti sem tók gildi 1.7.2014.
14
Umhverfis- og samgöngunefnd - 60. fundur
Frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dags. 12. desember, svar við upplýsingabeiðni Kópavogsbæjar frá 27. ágúst sl., ásamt umsögn sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 15. desember, um loftgæðamælingar vegna brennisteinsmengunar frá Hellisheiðarvirkjun.$line$Lagt fram og vísað til umhverfis- og samgöngunefndar til kynningar.$line$
Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd harmar einróma að Orkuveita Reykjavíkur sinni ekki lögboðinni upplýsingaskyldu um mælingar sbr. 6.grein reglugerðar 514/2010 í Lækjabotnum. En samkvæmt skilyrðum undanþágu til tveggja ára er Orkuveitu Reykjavíkur gert að birta loftgæðisupplýsingar á aðgengilegan og skiljanlegan hátt að höfðu samráði við Umhverfisstofnun. Þannig er betur tryggt að almenningur sé ætíð upplýstur um loftgæði á áhrifasvæði Hellisheiðavirkjunar hvort sem um er að ræða almennar upplýsingar fyrir íbúa, viðkvæma hópa eða þá sem stunda útivist á svæðinu. Enn fremur kemur fram í undanþágu að upplýsa skal almenning um líklega útbreiðslu brennisteinsvetnis á áhrifasvæði Hellisheiðavirkjunar þegar útlit er fyrir að styrkur þess fari yfir tilkynningarmörk. Umhverfis- og samgöngunefnd harmar einróma jafnframt að ekki skuli fylgst með því að Orkuveita Reykjavíkur uppfylli þau skilyrði sem sett voru fyrir undanþágunni. Nefndin telur fulla ástæðu til að mælingum sé haldið áfram þrátt fyrir jarðeld í hálendi landsins.
15
Bæjarráð - 2755. fundur
Frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dags. 12. desember, svar við upplýsingabeiðni Kópavogsbæjar frá 27. ágúst sl., ásamt umsögn sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 15. desember, um loftgæðamælingar vegna brennisteinsmengunar frá Hellisheiðarvirkjun.
Lagt fram og vísað til umhverfis- og samgöngunefndar til kynningar.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson kom til fundarins kl. 8:22.
16
Umhverfis- og samgöngunefnd - 56. fundur
Lagðar fram upplýsingar frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins varðandi fyrirspurn um upplýsingar um undanþágu til tveggja ára sem Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitti Orkuveitu Reykjavíkur frá kröfum í reglugerð um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti sem tóku gildi 1.7.2014 að uppfylltum ákveðnum skilyrðum tilkynning dags. 6.6.2014 ásamt erindi til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis frá bæjarstjóra varðandi beiðni um upplýsingar og rökstuðning dags. 18.9.2014.
Umhverfis- og samgöngunefnd hefur borist umsókn Orkuveitu Reykjavíkur um undanþágu frá reglugerð um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti til umhverfis- og auðlindaráðuneytis ásamt umsögn Orkustofnunar dags. 17.3.2014, umsögn Heilbrigðiseftirlits Hafnafjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 5.3.2014, ásamt umsögn Heilbrigðisnefndar Kjósasvæðis dags. 21.3.2014, ásamt umsögn Waldorfskólanna dags. 18.3.2014, Heilbrigðisnefndar Suðurlands dags. 11.3.2014, umsögn Embættis landlæknis dags 13.3.2014, umsögn Umhverfisstofnunar dags. 2.4.2014 og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 1.4.2014.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogsbæjar harmar hinsvegar og furðar sig á að svar við erindi til Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu hafi ekki borist nefndinni varðandi undanþágu og skilyrði Orkuveitu Reykjavíkur fá kröfum um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti. Umhverfis- og samgöngunefnd ítrekar beiðni um svör til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins hvers vegna Orkuveita Reykjavíkur sinni ekki upplýsingaskyldu um mælingar sbr. 6. grein reglugerðar 514/2010 í Lækjarbotnum í samræmi við skilyrði í undanþágu. Hver framfylgi skilyrðum og eftir hvaða verklagsreglum sé unnið.
17
Bæjarráð - 2726. fundur
Í ljósi niðurstaðna mælinga og með vísan til 6. greinar reglugerðar um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti nr. 514/2010 ítrekar umhverfis- og samgöngunefnd að Orkuveita Reykjavikur (Orka Náttúrunnar) framkvæmi á sinn kostnað, samanber ákvæði reglugerðar, frekari loftgæðisrannsóknir á svæðinu í námunda við leik- og grunnskóla og tryggi að búsetuskilyrðum og skólahaldi á svæðinu sé ekki ógnað sökum hás gildis brennisteinsvetnis í andrúmslofti á svæðinu sökum starfsemi á Hengilsvæðinu. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar, sbr. lið 1 í fundargerð.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar.
18
Umhverfis- og samgöngunefnd - 47. fundur
Kynning frá fulltrúum Orkuveitu Reykjavíkur vaðrandi aðgerðaáætlun í Lækjarbotnum í Kópavogi.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Hólmfríði Sigurðardóttur, Umhverfisstjóra Orkuveitu Reykjavíkur og Bjarna Má Júlíssyni, verkefnastjóra Orku Náttúrunnar fyrir kynninguna. Umhverfis- og samgöngunefnd mælir gegn undanþágum eða frestun frá ákvæði reglugerðar sem tekur gildi 1.júlí 2014 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmsloft er varða tilkynningarskyldu og upplýsingagjöf til almennings þegar styrkur brennisteinsvetnis hefur farið yfir 50 µg/m3 í þrjár klukkustundir samfleytt. Í ljósi niðurstaðna mælinga og með vísan til 6. greinar reglugerðar um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti nr. 514/2010 ítrekar Umhverfis- og samgöngunefnd að Orkuveitar Reykjavikur (Orka Náttúrunnar) framkvæmi á sinn kostnað samanber ákvæði reglugerðar frekari loftgæðisrannsóknir á svæðinu í námunda við leik- og grunnskóla og tryggi að búsetuskilyrðum og skólahaldi á svæðinu sé ekki ógnað sökum hás gildis brennisteinsvetnis í andrúmslofti á svæðinu sökum starfsemi á Hengilsvæðinu. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
19
Umhverfis- og samgöngunefnd - 46. fundur
Fulltrúi frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis kynnir mælingar á loftgæðum í Lækjabotnum í Kópavogi tímabilið 19.9.2012 - 29.1.2014.
20
Bæjarráð - 2681. fundur
Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum af loftgæðum í Lækjarbotnum vegna Hellisheiðarvirkjunar og felur bæjarstjóra að gera drög að erindi til Orkuveitu Reykjavíkur og leggja fyrir bæjarráð.
21
Umhverfis- og samgöngunefnd - 32. fundur
Fulltrúi frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis kynnir mælingar á loftgæðum í landi Kópavogs.
Páll Stefánsson og Tore Skjenstad frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis kynntu annars vegar mælingar á loftgæðum almennt í þéttbýli Kópavogs og hins vegar í Lækjarbotnum. Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar fyrir erindið.