Borgarholt - bílastæði og aðkoma.
Málsnúmer: 1306637
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1122. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 18. ágúst, lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að breyttri aðkomu að bílastæðum við Menningartorfuna og Kópavogskirkju. Skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa framlagða tillögu og bárust engar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2785. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 18. ágúst, lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að breyttri aðkomu að bílastæðum við Menningartorfuna og Kópavogskirkju. Skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa framlagða tillögu og bárust engar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1263. fundur
Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að breyttri aðkomu að bílastæðum við Menningartorfuna og Kópavogskirkju. Á fundi skipulagsnefndar 16.3.2015 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Á fundi bæjarstjórnar 24.3.2015 var afgreiðsla skipulagsnefndar staðfest. Kynningu lauk 2.7.2015. Engar athugasemdir bárust við kynnta tillögu.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Bæjarstjórn - 1113. fundur
Lögð fram tillaga umhverfissviðs að breyttri aðkomu að bílastæðum við Menningartorfuna og Kópavogskirkju. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
05
Bæjarráð - 2767. fundur
Lögð fram tillaga umhverfissviðs að breyttri aðkomu að bílastæðum við Menningartorfuna og Kópavogskirkju.$line$Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
06
Skipulagsnefnd - 1255. fundur
Lögð fram tillaga umhverfissviðs að breyttri aðkomu að bílastæðum við Menningartorfuna og Kópavogskirkju.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
07
Umhverfis- og samgöngunefnd - 37. fundur
Lögð er fram teikning sem sýnir aðkomu frá Borgarholtsbraut að bílastæðum við Menningartorfuna og Kópavogskirkju.
Samþykkt.
08
Umhverfis- og samgöngunefnd - 36. fundur
Vakin hefur verið athygli á að bílum er lagt ólöglega upp á gangstétt við Hamraborg 10.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna í málinu.