Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 37. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Björnsdóttir - formaður
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Helgi Jóhannesson - aðalmaður
  • Steingrímur Hauksson
  • Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
  • Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Ólafsson - varafulltrúi
  • Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Birgir Hlynur Sigurðsson

Ritari

  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Hamraborg, bílastæði

Lögð er fram teikning sem sýnir aðkomu frá Borgarholtsbraut að bílastæðum við Menningartorfuna og Kópavogskirkju.

Samþykkt.

Almenn erindi

02

Hávaðakort og kort yfir stóra vegi.

Lögð er fram skýrslan Aðgerðaáætlun gegn hávaða. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust frá íbúum á kynningartíma.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir <EM>Aðgerðaáætlun gegn hávaða</EM> og vísar skýrslunni til samþykktar hjá bæjarstjórn.

Almenn erindi

03

Biðstöð í Hamraborg. Tillaga frá Pétri Ólafssyni.

Bæjarráð vísaði málinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu þann 27.06.2013. Lagðar eru fram tillögur að útfærslu biðstöðva í Hamraborg.

Umhverfis- og samgöngunefnd vísar málinu til fjárhagsáætlunar 2014.

Almenn erindi

04

Umhverfisviðurkenningar 2013

Tilnefningar til Umhverfisviðurkenninga 2013.

Lagðar fram að nýju tilnefningar að viðurkenningarhöfum og götu ársins. Tilnefningu um götu ársins er vísað til bæjarstjórnar.

Almenn erindi

05

Útikennslusvæði í Kópavogi

Skipulagsnefnd hefur samþykkt tillögu umhverfis- og samgöngunefndar að útikennslusvæði við Lindaskóla, Dimmu og í Hádegismóum. Erindinu hefur verið vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Staðsetning að útikennslusvæði í Fossvogsdal austur verður endurunnin.

Erindinu vísað til bæjarstjórnar.

Almenn erindi

06

Viðbragðsáætlun vegna mengunar. Tillaga frá Margréti Björnsdóttur, Ómari Stefánssyni og Rannveigu Ásgeirsdóttur.

Bæjarráð vísaði málinu til umhverfissviðs þann 27.06.2013. Umhverfisfulltrúi kynnir stöðu mála.

Lagt fram, unnið verður áfram í málinu.

Almenn erindi

07

Aðgerðir í loftslagsmálum, skýrsla

Lögð fram skýrslan Aðgerðir í loftslagsmálum, dags maí 2013. Skýrsla samstarfshóps til umhverfis- og auðlindaráðherra 2013

Kynnt.

Almenn erindi

08

Hjól fyrir starfsfólk bæjarskrifstofu Kópavogs.

Kynnt hugmynd að hjólum fyrir starfsfólk bæjarskrifstofu Kópavogs.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að kanna málið nánar.