Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Málefni skólanefndar

Málsnúmer: 1408250

Ferill máls

01

Skólanefnd - 112. fundur

Umræða um kjarasamninga kennara

Kjarasamningur var kynntur. Umræður um málefnið. Sagt frá fundi bæjaryfirvalda með trúnaðarmönnum kennara. Umræðum verður haldið áfram.

02

Skólanefnd - 105. fundur

Fundaráætlun fyrir haustönn 2016 lögð fram.

Skólanefnd samþykkir með öllum greiddum atkvæðum fundaráætlun.

03

Skólanefnd - 101. fundur

Sverrir Óskarsson fulltrúi Bjartrar framtíðar var kosinn varaformaður skólanefndar með öllum greiddum atkvæðum.

04

Skólanefnd - 96. fundur

Fundaráætlun fyrir vormisseri 2016 lögð fram.

Skólnefnd samþykkir áætlunina.

05

Skólanefnd - 89. fundur

Fundaráætlun fyrir haustmisseri 2015 lögð fram.

Áætlun samþykkt.

06

Skólanefnd - 88. fundur

Fyrsti fundur hausts ákveðinn.

Fyrsti fundur haustmisseris verður 24. ágúst 2015.

07

Skólanefnd - 80. fundur

Tillaga um dagsetningar skólanefndafunda á vormisseri 2015 lögð fram.

Tillaga samþykkt.

08

Skólanefnd - 73. fundur

Tillaga lögð fram.

Tillagan samþykkt.$line$$line$Bergljót Kristinsdóttir fulltrúi Samfylkingar og Gísli Baldvinsson fulltrúi Vinstri grænna og félagshyggjufólks, lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"1. Skólanefnd er ekki boðuð til starfa fyrr en við lok ágústsmánaðar eftir að allt skólahald er hafið og undirbúningur að baki. Ef litið er til bæjarfélaga af svipaðri stærð sést að haldnir hafa verið 2- 3 fundir eftir bæjarstjórnarkosningar.$line$2. Fjöldi funda fram að áramótun er i knappara lagi. Til að mynda er einungis gert ráð fyrir einum fundi í október, en þá fer fram mótun fjárhagsáætlunar fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn. Áréttað er um leið að saman fer faglegt og fjárhagslegt samráð við fastanefndir bæjarstjórnar.$line$3. Aðferðafræði sem notuð er við útdeilingu fjármagns til skóla bæjarins liggur ekki fyrir hjá Skólanefnd. Við gerum kröfu um að Skólanefnd fái upplýsingar um þá aðferðafræði sem nú er notuð.$line$4. Skólanefnd þarf að hafa aðkomu að áætlanagerð sem snýr að skólastarfi í bænum. Við teljum það sjálfsagt vinnulag að Skólanefnd yfirfari áætlanagerð á vinnslustigi áætlanagerðar.$line$Meirihlutinn hefur lagt á það áherslu að leggja beri áherslu á skólahald í málefnasamningi sínum og eru það því vonbrigði að ekki sé gert ráð fyrir meira samráði og samvinnu í skólanefnd."$line$$line$Úhlutunarreglur hafa ávalt legið fyrir og verða kynntar í nýrri skólanefnd eins og áður. Skólanefnd óskar eftir að fá kynningu á næsta fundi.