Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 101. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Ólafur Örn Karlsson - aðalfulltrúi
  • Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
  • Ragnhildur Reynisdóttir - aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
  • Gísli Baldvinsson - aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - varamaður
  • Guðrún G Halldórsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Arnar Björnsson - foreldrafulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Formaður skólanefndar Margrét Friðriksdóttir bauð nýja fulltrúa í skólanefnd velkomna sem eru Sverrir Óskarsson frá Bjartri framtíð og Birkir Jón Jónsson varafulltrúi Framsóknar.

Dagskrá fundar

01

Málefni skólanefndar

Sverrir Óskarsson fulltrúi Bjartrar framtíðar var kosinn varaformaður skólanefndar með öllum greiddum atkvæðum.

02

Umhverfismál Hörðuvallaskóli

Kynning á þróunarverkefni.

Encho Stoyanov, verkefnastjóri á umhverfissviði kynnti þróunarverkefni um umhverfismál í Hörðuvallaskóla.

03

Menntasvið-stefna um sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla. Stuðningur við nemendur m.sérþarfir.

Drög að stefnu kynnt og lögð fram til umsagnar.

Ragnheiður Hermannsdóttir kynnti vinnu við stefnumótun og drög lögð fram til skólanefndarmanna til umsagnar.

04

Aðalnámskrá grunnskóla - innleiðing í Kópavogi

Framhald umræðu um námsmat frá síðasta fundi skólanefndar.

Umræðu um mál sem frestað var frá síðasta fundi skólanefndar haldið áfram.$line$Birkir Jón Jónsson vék af fundi 18:50

05

Dægradvöl-stefna

Kynning á vinnu við lengdan opnurtíma dægradvala og sumarúrræðum fyrir yngstu börnin í grunnskólum Kópavogs.

Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðstjóri menntasviðs gerði grein fyrir þeirri vinnu sem er í gangi.