Skólanefnd - 105. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
- Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
- Gísli Baldvinsson - aðalfulltrúi
- Sóley Ragnarsdóttir - varafulltrúi
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Arnar Björnsson - foreldrafulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
- Þórir Bergsson - varafulltrúi
- Ragnhildur Björg Konráðsdóttir - varafulltrúi
- Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
- Sigrún Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
Ritari
- Ragnheiður Hermannsdóttir
Dagskrá fundar
Kynning á verkefninu OKKAR KÓPAVOGUR.
Sólveig Jóhannsdóttir, verkefnastjóri á umhverfissviði kom á fund skólanefndar og kynnti verkefnið.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar nefnda og ráða Kópavogsbæjar.
Skólanefnd fagnar drögum að framkvæmdaáætlun og mun senda deildarstjóra grunnskóladeildar ábendingar ef þurfa þykir.
Á fundi bæjarráðs 11. ágúst var eftirfarndi bókað:
Bæjarráð beinir því til skólanefndar að skoða kostnað foreldra vegna námsgagna í grunnskólum bæjarins. Bæjarráð hvetur skólanefnd jafnframt að ýta undir að honum verði haldið í lágmarki. Þá bendir bæjarráð á að spjaldtölvuvæðing grunnskólanna á að draga úr kostnaði vegna innkaupa foreldra á námsgögnum.
Einnig verður tillaga Gísla Baldinssonar, fulltrúa félagshyggjufólks og vinstri grænna um málið lögð fram.
Arnar Björnsson fulltrúi foreldra í skólanefnd lagði fram eftirfarandi bókun frá SAMKÓP. "Um leið og fagnað er umræðu sem er í samfélaginu um gjaldfrjálsan grunnskóla og þeirra viðbragða sem einhverjir skólar hafa gripið til í þeim tilgangi að lækka kostnað foreldra við skólagöngu barna sinna er Kópavogsbær hvattur til að stíga skref í átt að gjaldfrjálsum grunnskólum í Kópavogi. Þetta samræmist skoðun umboðsmanns barna sem tekur undir með Heimili og skóla um gjaldfrjálsa grunnskóla. Í samantekt Sambandi íslenskra sveitarfélaga kemur fram að Ísland sé eina landið sem er með gjald fyrir grunnskóla frá 1. ? 10. bekkjar."
Skólanefnd felur menntasviði að skoða og taka saman kostnað foreldra vegna námsgagna í grunnskólum Kópavogs. Samatekt og hugmyndir verðar lagðar fyrir skólanefnd að nýju.
Fundaráætlun fyrir haustönn 2016 lögð fram.
Skólanefnd samþykkir með öllum greiddum atkvæðum fundaráætlun.
Formaður skólanefndar kynnir málefnið.
Margrét Friðriksdóttir formaður skólanefndar gerði grein fyrir stöðu máls.
Unnur Helga Óttarsdóttir, kennari í Hörðuvallaskóla sækir um námstyrk - kennsluafslátt.
Skólanefnd samþykkir erindið. Helgi Magnússon sat hjá.