Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Frágangur bifreiðastæða við Lindakirkju

Málsnúmer: 1409149

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2746. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, umsögn um erindi sóknarnefndar Lindakirkju varðandi frágang bílastæða við kirkjuna. Lagt er til að bærinn fái afnotarétt af bifreiðastæðum við Lindakirkju, að fráveitulagnir verði lagðar í bílastæðin á þessu ári og að á næsta fjárhagsári verði 15 m.kr. varið í að leggja slitlag á bílastæðin við kirkjuna.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum og felur bæjarlögmanni samningsgerð við sóknarnefndina vegna málsins.

02

Bæjarráð - 2742. fundur

Frá sóknarnefnd Lindakirkju, dags. 5. september, lagt fram tilboð í frágang bílastæða við kirkjuna og óskað eftir styrk til framkvæmdanna.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.