Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Garðlönd Kópavogsbæjar 2015.

Málsnúmer: 1502138

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1112. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 3. mars, lagt fram bréf þar sem óskað er eftir samþykki fyrir breyttu fyrirkomulagi vegna garðlanda og leigugjalda 2015. Lagt til að fyrirkomulag garðlanda 2015 verði eins og á síðasta ári, að því breyttu að komið verði á samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands um fræðslu á matjurtaræktun. Einnig lagt til að leigugjald hækki um kr. 300,- frá síðasta ári, verði kr. 4.500,- árið 2015 fyrir 25 fm garðland. $line$Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum breytt fyrirkomulag garðlanda og leigugjalda 2015 og vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.$line$

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2765. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 3. mars, lagt fram bréf þar sem óskað er eftir samþykki fyrir breyttu fyrirkomulagi vegna garðlanda og leigugjalda 2015. Lagt til að fyrirkomulag garðlanda 2015 verði eins og á síðasta ári, að því breyttu að komið verði á samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands um fræðslu á matjurtaræktun. Einnig lagt til að leigugjald hækki um kr. 300,- frá síðasta ári, verði kr. 4.500,- árið 2015 fyrir 25 fm garðland. $line$

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum breytt fyrirkomulag garðlanda og leigugjalda 2015 og vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 62. fundur

Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi og leigugjaldi 2015 ásamt yfirlitsmynd frá garyrkjustjóra dags. 11.2.2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur.$line$Garðyrkjustjóri sat fundinn undir þessum lið.