Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Rjúpnahæð: opin svæði, stígar og sparkvöllur. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1502167

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1277. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 11.4.2016 var samþykkt að falla frá kynntum tillögum að breyttri staðsetningu sparkvallar í Rjúpnahæð. Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu málsins og fól skipulags- og byggingardeild að kynna nánari útfærslu á sparkvelli fyrir hlutaðeigandi. Var hlutaðeigandi tilkynnt niðurstaða skipulagsnefndar með bréfi dags. 2.5.2016. Athugasemdir bárust frá Erlu Björk Steinarsdóttur og Birni Jakobi Tryggvasyni, Auðnukór 7, dags. 25.5.2016.

Lagt fram og samþykkt.

02

Skipulagsnefnd - 1275. fundur

Greint frá vettvangsferð starfsmanna umhverfissviðs. Lögð fram útfærsla umhverfissviðs dags. 11.4.2016 að staðsetningu sparkvallar við Austurkór í samræmi við gildandi deiliskipulag.$line$$line$Athugasemdir og ábendingar sem bárust við kynnta tillögu lagðar fram að nýju.

Það er mat skipulagsnefndar með tilvísan í framkomnar athugasemdir og með tilvísan í tillögu umhverfissviðs að falla frá kynntum tillögum að breyttri staðsetningu sparkvallar í Rjúpnahæð. Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingardeild að kynna nánari útfærslu á sparkvelli fyrir hlutaðeigandi.$line$$line$Frestað.

03

Skipulagsnefnd - 1274. fundur

Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015. Tillagan var auglýst í júní 2015. Athugasemdir bárust við kynnta tillögu. Á fundi skipulagsnefndar 17.8.2015 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.

Skipulagsnefnd samþykkti að skipulags- og byggingardeild boði til fundar með íbúum um mögulega útfærslu á leiksvæði og sparkvelli.

04

Skipulagsnefnd - 1263. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015. Á fundi skipulagsnefndar 16.3.2015 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Kynningu lauk 2.7.2015. Athugasemdir bárust við kynnta tillögu frá Matthildi Baldursdóttur og Reinhard Valgarðssyni, Auðnukór 9, dags. 8.6.2015; frá Stuart K. Hjaltalín, Austurkór 102, dags. 15.6.2015; frá íbúum Austurkórs og Auðnukórs, 13 undirskriftir, dags. 22.6.2015; frá Illuga Fanndal Birkissyni, Auðnukór 5, dags. 22.6.2015; frá Kára Eiríkssyni, hönnuði Auðnukórs 5, dags. 1.7.2015; frá Ólafi I. Arnarsyni og Unni Helgu Óttarsdóttur, Austurkór 82, dags. 2.7.2015; frá Birni Jakobi Tryggvasyni og Erlu Björk Steinarsdóttur, Auðnukór 7, dags. 4.6.2015; frá Sveini Áka Sverrissyni, verðandi íbúa við Austurkór, dags. 5.6.2015.

Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Skipulagsnefnd lagði til að farið verði í vettvangsferð.

05

Bæjarstjórn - 1113. fundur

Lögð fram og kynnt tillaga umhverfissviðs að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

06

Bæjarráð - 2767. fundur

Lögð fram og kynnt tillaga umhverfissviðs að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015. $line$Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

07

Skipulagsnefnd - 1255. fundur

Lögð fram og kynnt tillaga umhverfissviðs að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

08

Umhverfis- og samgöngunefnd - 61. fundur

Lögð fram og kynnt drög að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015.

Lagt fram og kynnt.

09

Skipulagsnefnd - 1253. fundur

Lögð fram og kynnt drög að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015.

Lagt fram og kynnt.