Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 61. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hjördís Ýr Johnson - formaður
  • Jón Kristinn Snæhólm - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Sigurður M Grétarsson - aðalmaður
  • Einar Baldursson - aðalmaður
  • Hreggviður Norðdahl - áheyrnarfulltrúi
  • Birgir Hlynur Sigurðsson
  • Bjarki Þórir Valberg

Ritari

  • Bjarki Valberg

Dagskrá fundar

01

Kópavogstún. Heilsugarður.

Kynning á nemendaverkefni "Heilsugarður fyrir almenning á Kópavogstúni".

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Kristjáni Sigurgeirssyni fyrir kynninguna.

02

Fossvogsdalur. Skipulag.

Lögð fram drög að skipulagslýsingu deiliskipulags Fossvogsdals sem unnin er sem samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar dags. 3.2.2015.

Yngvi Þór Loftsson frá Landmótun kynnti drög að skipulagslýsingu. Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar fyrir kynninguna. Lagt fram og kynnt.

03

Kópavogsdalur. Skipulag.

Farið yfir skipulag Kópavogsdals og lagðar fram hugmyndir um að unnið verði heildarskipulag fyrir svæðið.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma fyrir sitt leiti að skipulags- og byggingardeild hefji vinnu við heildarskipulagningu svæðisins.

04

Rjúpnahæð, opin svæði og stígar.

Lögð fram og kynnt drög að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015.

Lagt fram og kynnt.

05

Auðbrekka þróunarsvæði

Kynntar niðurstöður samráðsfundar í Auðbrekku sem haldinn var 29.1.2015.

Lögð fram samantekt samráðsfundar dags. 29.1.2015.

06

Engihjalli - Þróunarverkefni

Gert grein fyrir stöðu mála.

Gert grein fyrir stöðu mála.

07

Fjárhagsáætlun Kópavogs 2015

Stefán L. Stefánsson deildarstjóri framkvæmdadeildar umhverfissviðs kynnir fjárhagsáætlun umhverfissvið 2015.

Lagt fram og kynnt.