Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skipulagsnefnd - 1253. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
  • Anna María Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Sigríður Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ása Richardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
  • Smári Magnús Smárason - starfsmaður nefndar
  • Þóra Jóhannesdóttir Kjarval - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Þóra Kjarval

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Kópavogstún. Heilsugarður.

Kristján Sigurgeirsson kynnir lokaverkefni sitt "Heilsugarður fyrir almenning á Kópavogstúni".

Skipulagsnefnd þakkaði Kristjáni Sigurgeirssyni fyrir kynninguna.

Almenn erindi

02

Fossvogsdalur. Skipulag.

Lögð fram drög að skipulagslýsingu fyrir deiliskipulag Fossvogsdals dags. 3.2.2015 sem unnin er sem samstarfsverkefni Kópavogs og Reykjavíkur.

Skipulagsnefnd þakkaði Yngva Þór Loftssyni frá Landmótun fyrir kynningu á drögum að skipulagslýsingu.$line$$line$Frestað.

Almenn erindi

03

Kópavogsdalur. Skipulag.

Farið yfir skipulag Kópavogsdals og lagðar fram hugmyndir um að unnið verði heildarskipulag fyrir dalinn.

Skipulagsnefnd samþykkti að skipulags- og byggingardeild hefji vinnu við heildarskipulagningu svæðisins.

Almenn erindi

04

Rjúpnahæð, opin svæði og stígar.

Lögð fram og kynnt drög að stígakerfi og staðsetningu leiksvæða í Rjúpnahæð dags. 16.1.2015.

Lagt fram og kynnt.

Almenn erindi

05

Auðbrekka þróunarsvæði

Lögð fram samantekt frá íbúafundi sem haldinn var 29. janúar 2015.

Kynnt.

Almenn erindi

06

Engihjalli - Þróunarverkefni

Greint frá stöðu mála.

Kynnt.

Almenn erindi

07

Fjárhagsáætlun Kópavogs 2015

Stefán Loftur Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdardeildar Umhverfissviðs, kynnir fjárhagsáætlun Umhverfissviðs 2015.

Lagt fram og kynnt.