Æfingatöflur fyrir veturinn 2015-2016
Málsnúmer: 1504773
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 49. fundur
Lögð fram samantekt á þeim umsóknum sem borist hafa ráðinu frá íþróttafélögum fyrir næsta vetur. Í samantektinni koma fram óskir deilda sem inn voru sendar og tillögur íþróttadeildar að afgreiðslu þeirra.$line$Jafnframt lagðar fram æfingatöflur íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar sem byggja á töflum frá síðastliðnu ári og á þeim tillögum sem fyrir liggja.
Íþróttaráð er nú í fyrsta skipti að úthluta æfingaaðstöðu eftir nýsamþykktum reglum um afnot í íþróttamannvirkkjum bæjarins. Við yfirferð umsóknanna kom í ljós að lagfæra orðalag í 2. grein reglnanna um styrkhæfi. Lagt er til að bæta "eða Íslandsmótum í" inn í grein 2.c. $line$Eftir breytingu hljóðar grein svo; c) Meistaraflokka í hóp- og einstaklingsíþróttum sem keppa í efstu deild eða Íslandsmótum í viðkomandi íþróttagreinum.$line$Íþróttaráð lýsir ánægju sinni með hversu snemma hægt er að afgreiða tímatöflur íþróttamannvirkja bæjarins og jafnframt hversu vel gekk að mæta óskum íþróttafélaganna.$line$Hins vegar telur Íþróttaráð að í sumum tilvikum hafi skort á að fullnægjandi gögn hafi borist frá íþróttafélögunum í samræmi við þá forskrift sem fram kemur í úthlutunarreglunum. Íþróttaráð felur íþróttadeild að fylgja því eftir að við næstu úthlutun verði fullnægjandi upplýsingagjöf í samræmi við úthlutunarreglurnar.
02
Íþróttaráð - 48. fundur
Lögð fram samantekt íþróttadeildar með óskum íþróttafélaganna um afnot af íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar frá hausti 2015 og út veturinn 2016.
Íþróttaráð fagnar því hve snemma upplýsingar um æfingatöflur fyrir veturinn 2015 - 2016 liggja fyrir. Íþróttafulltrúa falið að vinna málið áfram. Ákvarðanir verða teknar á 49. fundi Íþróttaráðs.
03
Íþróttaráð - 47. fundur
Lagt fram til kynningar bréf íþróttadeildar til íþróttafélaganna í bænum vegna afnotaumsókna þeirra fyrir næsta vetur sem sent verður út í upphafi næstu viku.
Lagt fram.