Umhverfisviðurkenningar 2015
Málsnúmer: 1505243
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 68. fundur
Greint frá stöðu mála.
Lagt fram og kynnt.
02
Bæjarstjórn - 1120. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 3. júlí, lagt fram minnisblað varðandi umhverfisviðurkenningar 2015. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti einróma framlagða tillögu að veita Baugakór viðurkenningu fyrir götu ársins. Umhverfis- og samgöngunefnd vísaði tillögu að götu ársins til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar með fimm atkvæðum og vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.
03
Bæjarráð - 2782. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 3. júlí, lagðar fram tilnefningar varðandi umhverfisviðurkenningar 2015. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti tillögu um viðurkenningu fyrir götu ársins og vísaði tillögunni til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar með fimm atkvæðum og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
04
Umhverfis- og samgöngunefnd - 66. fundur
Lagt fram minnisblað varðandi umhverfisviðurkenningar 2015 dags. 16.6.2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur og felur umhverfisfulltrúa að vinna áfram í verkefninu.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd vísar tillögu að götu ársins til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.
05
Umhverfis- og samgöngunefnd - 65. fundur
Lagt fram minnisblað varðandi umhverfisviðurkenningar 2015 dags. 12. maí 2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur og felur umhverfisfulltrúa að vinna áfram í verkefninu.