Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 68. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Jón Kristinn Snæhólm - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Sigurður M Grétarsson - aðalmaður
  • Einar Baldursson - aðalmaður
  • Hreggviður Norðdahl - áheyrnarfulltrúi
  • Birgir Hlynur Sigurðsson
  • Karl Eðvaldsson
  • Bjarki Þórir Valberg

Ritari

  • Bjarki Valberg

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Auðbrekka þróunarsvæði

Greint frá stöðu mála.

Lagt fram og kynnt.

Almenn erindi

02

Kópavogsbraut 19, Umferðaröryggi við leikskólann Urðarhóll.

Lögð fram tillaga að breyttu umferðarskipulagi við Kópavogsbraut 19.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að framlögð tillögu og að auki að gangbraut verði upphækkuð.

Almenn erindi

03

Kríunes (Vatnsendabl./Kríunes)

Lagt fram erindi Björns I. Stefánssonar dags. 28.8.2015 varðandi skilti og umferðaröryggi.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að sett verði upp skilti til vegvísunar í samráði við umhverfissvið Kópavogsbæjar.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir að unnin verði heildræn stefna um útlit, uppsetningu og umsóknarferli um skilti og vegvísanir í Kópavogi.

Almenn erindi

04

Kóravegur - Hraðatakmarkanir

Lagt fram erindi Björns Ásbjörnssonar varðandi umferðaröryggi á Kóravegi dags. 21.8.2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að leggja fram tillögur að útfærslu á umræddu svæði í samræmi við erindi fyrir næsta fund nefndarinnar.

Almenn erindi

05

Umhverfisviðurkenningar 2015

Greint frá stöðu mála.

Lagt fram og kynnt.