Starfshópur um framtíðarskipulag knattspyrnumála í Kópavogi.
Málsnúmer: 1506124
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2812. fundur
Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 4. mars, lögð fram niðurstaða starfshóps um framtíðarskipulag knattspyrnumála í Kópavogi. Íþróttaráð samþykkti tillögu starfshópsins um úthlutun aðstöðu undir knattspyrnu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþróttaráðs með fimm atkvæðum.
02
Íþróttaráð - 57. fundur
Lagt fram svarbréf frá Knattspyrnudeildar Breiðabliks dags. 16. febrúar sl., við bréfi formanns íþróttaráðs dags. 17. nóv. sl þar sem óskað var eftir því að fá "ítarlega greinargerð um fyrirhugaða notkun á svæði Fagralundar" verði deildinni úthlutað svæðinu til afnota.$line$Jafnframt lagt fram minnisblað frá starfshópi um framtíðarskipan knattspyrnumála í Kópavogi, dags. 29.02.2016, með tillögum um uppskiptingu starfssvæða íþróttafélaga í bænum.
Starfshópurinn leggur til við íþróttaráð að fela íþróttadeild Kópavogsbæjar að framkvæma þá uppskiptingu sem tilgreind er í yfirlýsingum Kópavogsbæjar, HK og Breiðabliks frá 2013 og 2014 , sem felur í sér skiptingu þjónustusvæða með 2ja km radíus umhverfis Kórinn og Fífuna. $line$Í framkvæmd verði miðað við að uppskipting fari fram eigi síðar en 1. júní 2016. $line$$line$Íþróttadeild mun því úthluta;$line$$line$1. Breiðablik allri knattspyrnuaðstöðu að Fagralundi til notkunar. Tryggt verði að sú starfssemi sem Breiðablik verði með muni fá nauðsynlegan aðgang að aðstöðu í húsnæði Fagralundar eins og venja er um slíka notkun. Notkun Breiðabliks á knattspyrnuvöllunum skal ekki hafa áhrif á notkun HK á húsnæði Fagralundar fyrir innanhússgreinar s.s. fyrir dans og blak. $line$$line$2. HK verði úthlutað Knattspyrnuvelli að Versölum til notkunar fyrir æfingar í barna og unglingastarfi í knattspyrnu. Notkun HK á knattspyrnuvöllunum fyrir barna- og unglingastarf skal þó ekki takmarka notkun Gerplu á svæðinu fyrir barna og unglingastarf svo sem á leikjanámskeiðum á sumrin. $line$$line$3. Íþróttadeild í samráði við vallarráð mun áfram úthluta aðstöðu á báðum vallarsvæðunum til að framkvæma keppnisleiki eftir álagi og umfangi hjá hvoru félagi fyrir sig.$line$$line$Íþróttaráð samþykkir að með úthlutun knattspyrnusvæða í Fagralundi til Breiðabliks eigi það jafnt við um almenn sumarnámskeið, svo sem "íþróttir og útilíf" og knattspyrnuskóla félagsins. $line$Íþróttaráð samþykkir tillögur starfshópsins og vísar þeim til staðfestingar bæjarráðs.$line$Matthías Imsland sat hjá við afgreiðslu málsins.
03
Íþróttaráð - 51. fundur
Lögð fram kynning formanns íþróttaráðs frá 15. júlí sl. sem og kynningar frá knattspyrnudeildum HK og Breiðabliks frá því lok ágúst 2015.
Fyrir fundinum lágu þrjár kynningar sem lagðar voru fram á fundum starfshóps um framtíðarskipan knattspyrnumála í Kópavogi. Um er að ræða kynningar frá starfshópnum sjálfum, kynningu frá HK og kynningu frá Breiðablik. Á fundi Íþróttaráðs fóru fram almennar umræður um framlögð gögn og málið í heild sinni.$line$Íþróttaráð telur mikilvægt að í starfi starfshópsins verði annars vegar skilið á milli umfjöllunar um núverandi og hugsanlegra breytinga á þeirri aðstöðu sem nýtt er til knattspyrnuiðkunnar í Kópavogi og hins vegar þeirrar þjónustu sem veitt er hjá knattspyrnudeildunum, þ.e.a.s. þjónustuþáttinn.$line$Íþróttaráð leggur áherslu á að hlutverk starfshópsins sé að fjalla um þjónustuþáttinn. Í þeim efnum leggur íþróttaráð áherslu á að þjónusta í barna og unglingastarfi sé veitt í nærumhverfi hverju sinni. Lagt var upp með að skipta bæjarfélaginu upp í tvö knattspyrnusvæði út frá hringjum sem dregnir voru umhverfis nærumhverfi Kórsins og Fífunnar.$line$Íþróttaráð felur starfshópnum að halda áfram sinni vinnu sem miðar að því að vinna að gerð tímaáætlunar sem byggð verði á þeirri þjónustu sem veitt verður af hvoru félagi á því starfssvæði sem því er afmarkað. Þó skal eins og að framan greinir ávallt, byggt á þeirri meginreglu að þjónusta í barna og unglingastarfi verði veitt í nærumhverfi eftir því sem kostur er.
04
Íþróttaráð - 49. fundur
Almennar umræður um stöðu málsins og drög að fundaráætlun fyrir fyrstu 5 fundi nefndarinnar.
05
Íþróttaráð - 48. fundur
Íþróttaráði hefur fengið erindisbréf. Í því kemur fram að stefnumótun um íþróttir skuli fylgt eftir með gerð aðgerðaráætlana (2. tl. 2. mgr. 9. gr.). Samþykkt að skipa starfshóp til að vinna að aðgerðaráætlun um framtíðarskipulag knattspyrnumála í Kópavogi. Samþykkt að skipa Jón Finnbogason, Hlín Bjarnadóttur og Jón Júlíusson í starfshópinn. Kallað verður eftir 3 aðilum frá HK og 3 aðilum frá Breiðablik til þess að taka þátt í fundum nefndarinnar við gagnaöflun og undirbúningsvinnu, en þeir verða þó ekki hluti af starfshópnum sjálfum, sem skal skila niðurstöðu sinni til ÍTK. Starfshópurinn fær 4 mánuði til að ljúka sínu starfi. Formaður Íþróttaráðs stýrir starfi starfshópsins.