Fluglestin - tillaga að samstarfssamningi við SSH og aðildarsveitarfélög
Málsnúmer: 1603662
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1161. fundur
Frá SSH, dags. 14. júní, lögð fram drög að tillögu að samstarfssamningi milli SSH og Fluglestarinnar-þróunarfélags ehf. vegna Hraðlestar til og frá Keflavíkurflugvelli, sem stjórn SSH vísaði til efnislegrar umfjöllunar hjá aðildarsveitarfélögunum á fundi þann 6. júní síðastliðinn. Bæjarráð frestaði erindinu á síðasta bæjarráðsfundi 10.ágúst.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 8 atkvæðum gegn 1 atkvæðum Birkis Jóns Jónssonar og hjásetu Guðmundar Gísla Geirdal og Karenar E. Halldórsdóttur.
Bókun:
Ég tel ekki rétt að bæjaryfirvöld í Kópavogi leggi blessun sína yfir framhald verkefnisins. Ég hef ekki trú á því að sú kostnaðaráætlun sem fyrir liggur standist, sérstaklega ef mið er tekið af áætluðum kostnaði við Borgarlínuverkefnið. Í ljósi nýlegrar einkaframkvæmdar í jarðgangagerð er hætta á að skattgreiðendur muni á endanum þurfa að greiða kostnað vegna þessa verkefnis ef áætlanir ganga ekki eftir.
Mikilvægi verkefnisins mun verða æ minna eftir því sem tækniframförum á sviði samgöngumála vindur fram s.s. með sjálfkeyrandi bílum sem mun valda byltingu í almenningssamgöngum. Að auki hefur komið fram að umtalsvert dýrara verður að nýta sér fluglestina en t.d. flugrútuna.
Ef þessu verkefni verður hleypt áfram er ljóst að heilmikið rask mun verða fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Bora þarf rannsóknarholur með nokkur hundruð metra millibili og heilmikil vinna sem starfsmenn sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þurfa að leggja af mörkum til breytinga á gildandi skipulagi.
Birkir Jón Jónsson
02
Bæjarráð - 2881. fundur
Frá SSH, dags. 14. júní, lögð fram drög að tillögu að samstarfssamningi milli SSH og Fluglestarinnar-þróunarfélags ehf. vegna Hraðlestar til og frá Keflavíkurflugvelli, sem stjórn SSH vísaði til efnislegrar umfjöllunar hjá aðildarsveitarfélögunum á fundi þann 6. júní síðastliðinn. Bæjarráð frestaði erindinu á síðasta bæjarráðsfundi 10.ágúst.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar
03
Bæjarráð - 2879. fundur
Frá SSH, dags. 14. júní, lögð fram drög að tillögu að samstarfssamningi milli SSH og Fluglestarinnar-þróunarfélags ehf. vegna Hraðlestar til og frá Keflavíkurflugvelli, sem stjórn SSH vísaði til efnislegrar umfjöllunar hjá aðildarsveitarfélögunum á fundi þann 6. júní síðastliðinn.
Bæjarráð frestar erindinu.
Bókun Birkis Jóns Jónssonar:
"Þann 14. júní sl. óskuðu Samtök Sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðinu (SSH) eftir álitsgerð frá Landslögum - lögfræðistofu um samningstexta milli SSH og Fluglestarinnar - þróunarfélags ehf. Verkefnið er gríðarlega umfangsmikið og því nauðsynlegt að slík álitsgerð liggi fyrir áður en bæjarráð afgreiðir málið. Álitsgerðin hefur ekki borist bæjarráði Kópavogs.
Hvað Fluglestina varðar eru mörg álitaefni sem þarf að hafa á hreinu sem varða hagsmuni íbúa höfuðborgarsvæðisins og kjörnum fulltrúum ber skylda til að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir áður en lengra er haldið. Farið var ítarlega yfir nokkra þætti málsins í greinargerð lögfræðisstofunnar á fyrri stigum málsins og margar ábendingar um endurbætur á samningstexta komu fram. Það er ótækt að bæjarráð afgreiði fyrirliggjandi samningsdrög fyrr en að greinargerð, sem kallað hefur verið eftir, liggur fyrir."
04
Bæjarráð - 2878. fundur
Runólfur Ágústsson framkvæmdastjóri Fluglestarinnar-þróunarfélags ehf. fer yfir áform félagsins vegna Fluglestarinnar og tillögu að samningsdrögum um skipulagsmál.
Bæjarráð frestar afgreiðslu á tillögu að samningsdrögum Fluglestarinnar til næsta fundar.
05
Bæjarráð - 2875. fundur
Frá SSH, dags. 14. júní, lögð fram tillaga að nýjum samningstexta milli SSH og Fluglestarinnar-þróunarfélags ehf., sem stjórn SSH vísaði til efnislegrar umfjöllunar hjá aðildarsveitarfélögunum á fundi þann 6. júní síðastliðinn.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
06
Bæjarráð - 2830. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs og bæjarlögmanni, dags. 7. júní, lögð fram umsögn um tillögu SSH að samstarfssamningi SSH og aðildarsveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um hraðlest á milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða umsögn.
07
Skipulagsnefnd - 1276. fundur
Frá bæjarráði:$line$Lögð fram samningsdrög að samstarfssamningi við SSH og aðildarsveitarfélög um hraðlest á milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins, ásamt fylgiskjali. Stjórn SSH samþykkti á fundi sínum þann 7. mars sl. að senda samningsdrögin til efnislegrar afgreiðslu hjá aðildarsveitarfélögum. Bæjarráð vísaði erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og bæjarlögmanns til umsagnar og skipulagsnefndar til upplýsinga.
Kynnt.
08
Bæjarráð - 2816. fundur
Frá SSH, dags. 8. mars, lögð fram samningsdrög að samstarfssamningi við SSH og aðildarsveitarfélög um hraðlest á milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins, ásamt fylgiskjali. Stjórn SSH samþykkti á fundi sínum þann 7. mars sl. að senda samningsdrögin til efnislegrar afgreiðslu hjá aðildarsveitarfélögum.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og bæjarlögmanns til umsagnar og skipulagsnefndar til upplýsinga.