Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda

Málsnúmer: 16111052

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1152. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinargerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda. Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember sl. Bæjarstjórn samþykkti að fresta afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 10. janúar sl. og vísaði því til bæjarráðs. Málið var tekið fyrir á fundi velferðarráðs þann 23. janúar sl. sem samþykkti fyrir sitt leyti framlagðar breytingar á reglum um sölu félagslegra íbúða.

Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram breytingartillögu við breytingartillögu á 1. mgr. 2. gr. sem hljóði svo:

"Tekjur heimilismanna mega þó ekki fara meira en 15% yfir efri tekjumörk".

Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir.

Bæjarstjórn hafnar breytingatillögunni með 7 atkvæðum gegn 3 atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar, Ásu Richardsdóttur og Margréti Júlíu Rafnsdóttur og hjásetu Birkis Jóns Jónssonar.


Sverrir Óskarsson leggur fram breytingartillögu við breytingartillögu á 1. mgr. 2. gr. sem hljóði svo:

"Tekjur heimilismanna mega þó ekki fara meira en fimmtung yfir efri tekjumörk".

Sverrir Óskarsson

Bæjarstjórn samþykkir breytingartillöguna með 8 atkvæðum og hjásetu Péturs Hrafns Sigurðssonar, Ásu Richardsdóttur og Margréti Júlíu Rafnsdóttur.

Bæjarstjórn samþykkir breytingartillögurnar í heild sinni með 11 atkvæðum.

02

Bæjarstjórn - 1151. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinargerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda. Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember sl. Bæjarstjórn samþykkti að fresta afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 10. janúar sl. og vísaði því til bæjarráðs. Málið var tekið fyrir á fundi velferðarráðs þann 23. janúar sl. sem samþykkti fyrir sitt leyti framlagðar breytingar á reglum um sölu félagslegra íbúða.

Bæjarstjórn samþykkir að fresta málinu með 11 atkvæðum.

03

Bæjarráð - 2855. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinargerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda. Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember sl. Bæjarstjórn samþykkti að fresta afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 10. janúar sl. og vísaði því til bæjarráðs. Málið var tekið fyrir á fundi velferðarráðs þann 23. janúar sl. sem samþykkti fyrir sitt leyti framlagðar breytingar á reglum um sölu félagslegra íbúða.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

04

Velferðarráð - 2. fundur

Velferðarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi 9. janúar 2017. Tekið fyrir að nýju.

Framlagðar breytingar á reglum um sölu félagslegra leiguíbúða voru samþykktar með fimm atkvæðum. Kristín Sævarsdóttir, Arnþór Sigurðsson og Ólöf Pálína Úlfarsdóttir sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Ása Arnfríður Kristjánsdóttir lögfræðingur og Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

05

Bæjarstjórn - 1149. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinargerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda. Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember sl.

Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu málsins og vísa því til bæjarráðs.

06

Velferðarráð - 1. fundur

Lagðar voru fram tillögur að breytingum á reglum um sölu félagslegra leiguíbúða. Velferðarráð frestaði afgreiðslu málsins.

Atli Sturluson rekstrarstjóri og Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

07

Bæjarráð - 2852. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinargerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda. Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember sl.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

08

Bæjarstjórn - 1148. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 29. nóvember, lögð fram drög að reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda ásamt greinargerð. Bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti framlögð drög að reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda og vísaði málinu til bæjarstjórnar.

Sverrir Óskarsson lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:

"Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda.

Tillögur um breytingu.

3. grein: Þar segir:

"Óháður fasteignasali skal verðmeta eignina og leigjandi gerir tilboð á grundvelli þess mats“.

Óskað er eftir að orðalagi verði breytt.

"Tveir óháðir fasteignasalar skulu verðmeta eignina og leigjandi gerir tilboð á grundvelli þess mats."

4. grein:

Nú stendur: „Kópavogsbær lánar kaupanda“.

Lagt til að þarna standi: „Kópavogsbæ er heimilt að lána kaupanda allt að 15% af kaupverði... „

Sverrir Óskarsson"

Bæjarstjórn samþykkir breytingartillögu Sverris Óskarssonar á 3. gr. með 11 atkvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir breytingartillögu Sverris Óskarssonar á 4. gr. með 10 atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði.

Bæjarstjórn samþykkir framlögð drög að reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda svo breytta með 11 atkvæðum.

09

Félagsmálaráð - 1423. fundur

Lögð voru fram drög að reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda sem eru yfir tekjuviðmiðum.

Félagsmálaráð fagnar þessum nýja áfanga í húsnæðisúrræðum fyrir fjölskyldur í félagslegum erfiðleikum. Ráðið álítur að með þessari aðgerð sé verið að koma til móts við fjölskyldur með því að auka stöðugleika og þar með velferð. Með þessari brú á milli félagslegrar leigu og eignaríbúða er kominn fram nýr valkostur sem ekki hefur verið í boði hér á landi.

Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

10

Bæjarráð - 2848. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 29. nóvember, lögð fram drög að reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda ásamt greinargerð.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda og vísar málinu til bæjarstjórnar.