Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skógræktarsvæði Skógræktarfélags Kópavogs í Selfjalli og Vatnsendaheiði, nýir samningar

Málsnúmer: 17031277

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3004. fundur

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að samningi við Skógræktarfélag Kópavogs um skógræktarsvæði félagsins í Selfjalli í Lækjarbotnum.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning.

02

Bæjarráð - 2867. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 11. apríl, lögð fram umsögn um erindi Skógræktarfélags Kópavogs sem varðar skógrækt á skógræktarsvæði félagsins í Selfjalli og á Vatnsendaheiði, þar sem óskað var eftir að gengið yrði til nýrra samninga. Lagt er til að gengið verði til nýrra samninga um Selfjall í Lækjarbotnum, en að beðið verði með að ganga til samninga um Vatnsendaheiði.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til nýrra samninga við Skógræktarfélag Kópavogs um skógræktarsvæði félagsins í Selfjalli í Lækjarbotnum og að beðið verði með að ganga til nýrra samninga um Vatnsendaheiði.

03

Bæjarráð - 2864. fundur

Frá Skógræktarfélagi Kópavogs og Skógræktarfélagi Íslands, lagt fram erindi varðandi skógræktarsvæði Skógræktarfélags Kópavogs í Selfjalli og Vatnsendaheiði þar sem óskað er eftir að gengið verði til nýrra samninga.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.