Rekstrarsamningur Leikfélagsins og Kópavogsbæjar. Ársreikningur og skýrsla stjórnar
Málsnúmer: 1709249
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 78. fundur
Drög að rekstrarsamningi Kópavogsbæjar og Leikfélags Kópavogs lagður fram.
Ráðið felur formanni ráðsins að ljúka samningi.
02
Lista- og menningarráð - 77. fundur
Til umræðu er rekstrarsamningur Leikfélags Kópavogs við Kópavogsbæ með þátttöku fulltrúa frá Leikfélaginu.
Á fundinn mættu stjórnarmenn úr Leikfélagi Kópavogs þau Hörður Sigurðarson, Örn Alexandersson og Anna Margrét Pálsdóttir.Formaður ráðsins gerði stjórnarmönnum grein fyrir hugmyndum um tímabundna framlegningu á samningnum og auknu samstarfi við forstöðumenn menningarhúsa Kópavogsbæjar. Fulltrúar LK senda ráðinu hugmyndir um breytingar á samningi fyrir 10. október. Ráðið vinnur svo áfram með þær hugmyndir í samstarfi við LK. og í samræmi við menningarstefnu bæjarins.
03
Lista- og menningarráð - 76. fundur
Lagt fram til umræðu ársreikningar 2016-2017, skýrsla stjórnar og rekstrarsamningur vegna beiðni um áframhaldandi samstarf bæjarins við Leikfélag Kópavogs.
Lista- og menningarráð mun endurskoða rekstrarsamninginn á milli aðilanna og taka hann fyrir að því loknu.
04
Bæjarráð - 2881. fundur
Frá Leikfélagi Kópavogs, dags. 31. ágúst, lagður fram reikningur vegna árlegs styrks bæjarins til LK skv. rekstrar- og samstarfssamningi.
Lagt fram.