Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Átak í nágrannavörslu. Frumkvæði Kópavogsbæjar í slíku átaki. Beiðni um umræðu í bæjarráði frá Birki Jóni Jónssyni

Málsnúmer: 1801569

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2906. fundur

Frá Birki Jóni Jónssyni, bæjarfulltrúa, óskað eftir umræðu um nágrannavörslu í Kópavogi og hver næstu skref eru í ferlinu.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2905. fundur

Frá verkefnastjóra hverfisskipulags, dags. 27. febrúar, lögð fram tillaga að útfærslu nágrannavörslu í Kópavogi. Tillagan getur tekið einhverjum breytingum eftir því sem verkefnið er unnið lengra.

Kristinn Dagur Gissurarson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Fulltrúi Framsóknar þakkar skjót viðbrögð og góðar tillögur frá verkefnisstjóra hverfisskipulags er varða Átak í nágrannavörslu. Mikilvægt að vinna áfram að þessu máli í samvinnu við íbúa.

Kristinn Dagur Gissurarson"

Bæjarráð felur bæjarritara að vinna áfram að málinu.

03

Bæjarráð - 2900. fundur

Beiðni frá Birki Jóni Jónssyni um umræðu í bæjarráði varðandi átak í nágrannavörslu og frumkvæmði bæjarins að slíku átaki.

Bæjarráð óskar eftir að bæjarritari leggi fram tillögur að útfærslu verkefnisins.