Forsætisnefnd - 132. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Friðriksdóttir - aðalmaður
- Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Dagskrá bæjarstjórnarfundar 12. febrúar nk.
I. Tillaga um lækkun launa kjörinna fulltrúa
II. Önnur mál. Fundargerðir nefnda
III. Kosningar
Tekin til umfjöllunar tillaga um lækkun launa kjörinna fulltrúa, sem vísað var til úrvinnslu forsætisnefndar.
Forsætisnefnd vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá bæjarlögmanni, umsögn um erindi Jóns Finnbogasonar varðandi aðgengi varabæjarfulltrúa að gögnum, dagsett 6. febrúar. Erindið var lagt fyrir forsætisnefnd 6. desember sl. og vísað til umsagnar bæjarritara.
Lagt fram.
Forsætisnefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar.
Frá deildarstjóra frístundadeildar menntasviðs, tillaga að breytingu á samþykktum fyrir öldungaráð.
Forsætisnefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar og óskar eftir að deildarstjóri frístundadeildar mæti til fundarins.