Fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar um mótun menntastefnu fyrir Kópavogsbæ
Málsnúmer: 1906543
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2967. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, kynning á mótun menntastefnu fyrir Kópavogsbæ.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2966. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 22. júlí, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi mótun menntastefnu fyrir Kópavogsbæ.
Lagt fram og kynning mun fara fram á næsta fundi bæjarráðs.
03
Bæjarráð - 2964. fundur
Frá bæjarfulltrúum Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar, lögð fram fyrirspurn um mótun menntastefnu fyrir Kópavogsbæ þar sem óskað er eftir upplýsingum um framvindu mótunar heildarstefnu um málefni grunnskóla, leikskóla, frístunda og íþrótta fyrir kjörtímabilið. Bæjarfulltrúar BF Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata óska eftir því að fá verkefnastjóra stefnumótunar í menntamálum á fund bæjarráðs til þess að fara yfir stöðuna á verkefninu, það er hvernig verkefnið hefur verið unnið, við hverja búið er að hafa samráð og hvort bæjarfulltrúar komi að greiningarvinnu í því ferli.
04
Bæjarráð - 2963. fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.