Bæjarráð - 3145. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaðurBoðaði forföllAndri Steinn Hilmarsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá SSH lögð fram svohljóðandi bókun; „Fyrirliggjandi eru drög að viðauka við eigendasamkomulag frá 25. október 2013 vegna meðhöndlunar úrgangs í Álfsnesi. Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri Sorpu bs. kynnir. Gerð er tillaga um að drögunum verði vísað til efnislegrar umræðu og afgreiðslu/samþykktar á vettvangi aðildarsveitarfélaganna.
Niðurstaða: Skrifstofu SSH er falið að senda fyrirliggjandi drög að viðauka við eigendasamkomulag vegna meðhöndlunar úrgangs í Álfsnesi til efnislegrar umræðu og afgreiðslu/samþykktar á vettvangi aðildarsveitarfélaganna.
Bæjarráð frestaði erindinu erindinu 14.09.2023.
Lagt fram og kynnt.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
02
Fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi afgreiðslu samkomulags um fyrirhugaða uppbyggingu á lóðum á Kársnesi
Frá bæjarstjóra, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi afgreiðslu samkomulags um fyrirhugaða uppbyggingu á lóðum á Kársnesi.
Lagt fram.
03
Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að Kópavogsbær setji sér reglur um úthlutun atvinnuhúsalóða
Frá bæjarlögmanni, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi reglur um úthlutun atvinnuhúsalóða.
Lagt fram.
Bókun:
"Undirritaðar hafa frá árinu 2021 kallað eftir því að settar verið úthlutunarreglur um atvinnuhúsalóðir í Kópavogi. Þrátt fyrir ítrekanir hafa umsagnir, sem óskað hefur verið eftir, ekki borist. Nú kemur fram að hafin sé heildarendurskoðun á úthlutunarreglum fyrir bæði íbúða- og atvinnuhúsalóðir. Undirritaðar ítreka ósk sína um umsögn og að bæjarráð taki í framhaldinu ákvörðun um endurskoðun úthlutunarreglna."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
04
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028, 182. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024?2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024?2028, 182. mál.
Bæjarráð samþykkir með fimm atvæðum að vísa málinu til umsagnar bæjarlögmanns.
Frá innviðaráðuneyti, dags. 29.09.2023, lagt fram erindi um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélaga.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.
Fundargerð í fjórum liðum.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.
9.8 - 23061532 - Smiðjuvegur 7. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Rýma akritekta fyrir hönd lóðarhafa dags. 28. júní 2023 þar sem sótt eru um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 7. við Smiðjuveg. Óskað er eftir að fá að nýta neðri hæð viðbyggingar á norðurhlið hússins og koma fyrir tveimur hurðum. Samhliða eru lagt til að leiðrétt verði fermetra fjöldi núverandi húsnæðis og öll A og B rými verða talin með í heildarbyggingarmagni. Í breytingunni felst að heildar byggingarmagn eykst úr 3.044 m² í 3.554 m² sem er aukning um 510 m². Nýtingarhlutfall eykst því úr 0,44 í 0,50. Uppdrættir í mkv. 1:100, 1:200 og 1:500 dags. 17. apríl 2023. Á fundi skipulagsráð 3. júlí var erindið samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 3, 3A, 4, 5, 6, 9, 9A, 11 og 30 við Smiðjuveg. Kynningartíma lauk 8. september 2023, umsögn barst. Þá lögð fram umsögn sem barst á kynningartíma.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Umsögn MÍ 14 ágúst 2023 - Smiðjuvegur 7 - Deiliskipulagsbreyting (1)
- Kynningaruppdráttur Smiðjuvegur 7 dags. 28. júní 2023
- B102 - Aðaluppdráttur dags. 17. apríl 2023.
- B100 - Aðaluppdráttur dags. 17. apríl 2023.
- B103 - Aðaluppdráttur dags. 17. apríl 2023.
- B101 - Aðaluppdráttur dags. 17. apríl 2023.
- smiðjuvegur 7 - 24. ágúst 2022 - 2109328
- Smiðjuvegur 7 - Erindi hönnuðar dags. 28. júní 2023
- smiðjuvegur 7 24. mars 2009
- 150. fundur skipulagsráðs - glærur
Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 15.06.2023.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 10:15, fundi fram haldið kl. 10:26