Breytingar á bæjarmálasamþykkt - seinni umræða.
Málsnúmer: 2209686
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1310. fundur
Seinni umræða um breytingar á bæjarmálasamþykkt.
Lagðar fram breytingartillögur meirihluta:
Tillaga 1:
Að "Mannlífs- og menningarnefnd" breytist í "Menningar- og mannlífsnefnd".
Bæjarstjórn samþykkir breytingartillöguna með 11 atkvæðum.
Tillaga 2:
Núverandi 6. gr. í viðauka IV falli á brott og inn komi ný 6. gr. í viðauka IV sem er eftirfarandi:
"Bæjarráði skal heimilt að taka ákvarðanir án staðfestingar bæjarstjórnar um útboð innkaupa, töku tilboða og samningsgerðar þegar um er að ræða vöru, þjónustu eða verk sem rúmast innan samþykktar fjárhagsáætlunar.
Beiðni um endurupptöku í málum skv. þessari grein skal beint til bæjarstjórnar. Bæjarráð getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn taki ákvörðun í máli skv. þessari grein.
Bæjarstjórn skal upplýst reglulega um mál sem bæjarráð afgreiðir."
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.
Fundarhlé hófst kl. 21:01, fundi fram haldið kl. 21:09.
Fundarhlé hófst kl. 21:48, fundi fram haldið kl. 22:01
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar í heild sinni svo breytta og vísar samþykktinni til staðfestingar ráðherra.
02
Bæjarstjórn - 1309. fundur
Fyrri umræða um breytingar á bæjarmálasamþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa breytingum á bæjarmálasamþykkt til síðari umræðu.
Bókun:
"Tillaga um endurskoðun bæjarmálasamþykktar var lögð fram af fulltrúum í minnihlutanum í upphafi kjörtímabils. Þá var hún ekki studd af meirihlutanum, sem tók þó upp þráðinn nokkru síðar. Samstarf hefur verið milli meirihluta og minnihluta um endurskoðunina og góðrar faglegrar ráðgjafar gætir í niðurstöðunum. Undirrituð fagna endurskoðaðri bæjarmálasamþykkt ásamt viðaukum. Með skilgreiningum á hlutverkum og ábyrgð er góður grunnur lagður að bættum stjórnarháttum og betra vinnulagi og verkferlum. Innleiðing breyttra stjórnarhátta er ærið viðfangsefni og krefst bæði vinnuframlags stjórnenda og starfsmanna bæjarins og stuðnings utanaðkomandi sérfræðinga. Undirrituð leggja því áherslu á að tillaga minnihlutans um fjárframlag til þessa verkefnis verði samþykkt við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Ella er hætt við að góð vinna hingað til skili ekki þeim árangri til framtíðar sem að var stefnt."
Bergljót Kristinsdóttir
Helga Jónsdóttir
Kolbeinn Reginsson
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
03
Bæjarráð - 3194. fundur
Frá starfshópi, lögð fram endurskoðuð drög að bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar. Bæjarráð frestaði málinu 07.11.2024.
Bæjarráð vísar framlögðum drögum að endurskoðaðri bæjarmálasamþykkt til afgreiðslu bæjarstjórnar.
04
Bæjarráð - 3193. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram endurskoðuð drög að bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar. Jafnframt leggur bæjarráð til að haldinn verði aukafundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 19. nóvember n.k. til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
05
Bæjarráð - 3189. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram endurskoðuð drög að bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.
06
Bæjarstjórn - 1268. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 6. desember 2022, lögð fram tillaga um stofnun starfshóps um breytingu á bæjarmálasamþykkt.
Fundarhlé hófst kl. 17:39, fundi fram haldið kl. 17:41.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að tilnefna Ásdísi Kristjánsdóttur, Orra V. Hlöðversson og Helgu Jónsdóttur í starfshóp um breytingu á bæjarmálasamþykkt.
07
Bæjarráð - 3110. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 6. desember 2022, lögð fram tillaga um stofnun starfshóps um breytingu á bæjarmálasamþykkt.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur stofnun starfshóps um breytingu á bæjarmálasamþykkt og vísar tilnefningum í hópinn til afgreiðslu bæjarstjórnar.