Bæjarráð - 3110. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, dags. 05.12.2022, lagt fram stöðumat og aðgerðaráætlun. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs á aðgerðaráætlun tengdri verkefninu barnvænt sveitarfélag.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða aðgerðaráætlun tengdri verkefninu barnvænt sveitarfélag.
Sviðsstjóri menntasviðs kynnir tillögur að tilfærslu verkefnisins Virkni og vellíðan yfir til Kópavogsbæjar frá íþróttafélögum.
Kynning.
Frá menntasviði, lögð fram tillaga að ráðningu í stöðu leikskólastjóra Kópasteins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum ráðningu Margrétar Stefaníu Lárusdóttur í stöðu leikskólastjóra Kópasteins.
Frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra leikskóladeildar, dags. 15.11.2022, lögð fram tillaga að stofnun starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla Kópavogsbæjar.
01.12.2022 - Bæjarráð frestar erindinu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu að stofnum starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla Kópavogsbæjar ásamt framlögðu erindisbréfi. Tilnefningu í starfshópinn vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá bæjarstjóra, dags. 6. desember 2022, lögð fram tillaga um stofnun starfshóps um breytingu á bæjarmálasamþykkt.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur stofnun starfshóps um breytingu á bæjarmálasamþykkt og vísar tilnefningum í hópinn til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Drög að samþykkt um valdaframsal frá sveitarstjórn til barnaverndarþjónustu, dags. 06.12.22 lögð fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá bæjarlögmanni og sviðstjóra umhverfissviðs, dags. 05.12.2022, lögð fram tillaga að kaupum á fasteign.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs
Frá bæjarlögmanni, dags. 30.11.2022, lögð fram beiðni um endurupptöku máls.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum beiðni bæjarlögmanns til endurupptöku málsins, afturköllun lóðarinnar Austurkór 34.
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 05.12.2022, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út innkaup á ræstingarþjónustu í Roðasölum.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til að bjóða út innkaup á ræstingarþjónustu í Roðasölum.
10
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um kynjahlutföll nefnda og ráða bæjarstjórnar Kópavogs
Frá lögfræðideild, dags. 28. nóvember, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa frá 21.11.2022.
Lagt fram.
11
Gullsmári 9 - umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 2. desember, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Félags eldri borgara um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 248.256,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum styrkumsókn að upphæð kr. 248.256,- enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
12
Hlíðasmári 14 - umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 2. desember, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Lionsumdæmisins á Íslandi um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 269.128,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum styrkumsókn að upphæð kr. 269.128,- enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Frá Boccia liði FEBK Gjábakka, dags. 16.11.2022, lögð fram umsókn um styrk til keppnisferðar innanlands í Boccia.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarritara.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 05.12.2022, lagt fram minnisblað um breytta skipan barnaverndar.
Lagt fram.
Frá SSH, dags. 06.12.2022, lagt fram minnisblað vegna stofnunar Áfangastaðastofu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum þátttöku Kópavogsbæjar í Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins.
Kynning á starfsemi Markaðsstofu Kópavogs.
Kynning.
Fundargerð 915. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25.11.2022
Lagt fram.
Frá SSH, dags. 01.12.2022, lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun SSH 2023. Óskað er eftir samþykkt bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
21.13 - 22115500 - Digranesheiði 45. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. nóvember 2022 þar sem umsókn Teiknistofunnar Óðinstorgi f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs.
Á lóðinni er einbýlishús byggt árið 1955 ásamt bílskúr byggðum árið 1968, alls 141,8 m². Í breytingunni felst að núverandi íbúðarhús verður rifið og byggt fjögurra íbúða raðhús á tveimur hæðum ásamt stakstæðu skýli fyrir hjól og 2 bíla. Áætlað er að gera upp núverandi bílskúr á lóðinni. Byggingarmagn á lóðinni yrði eftir breytingu 584 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,13, í 0,52.
Meðfylgjandi: Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 1. júní 2022 og minnisblað skipulagsdeildar dags. 1. desember 2022.
Skipulagsráð hafnar erindinu.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
21.4 - 22114320 - Huldubraut 28. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju umsókn Páls Hjaltasonar arkitekts f.h. lóðarhafa dags. 9. nóvember 2022, um breytt deiliskipulag lóðarinnar nr. 28 við Huldubraut.
Í breytingunni felst að heimilt verði að nýta ósamþykktan kjallara undir húsinu alls 155,5 m² að stærð. Gert er ráð fyrir að setja nýjar tröppur á norðurhlið hússins til að tryggja aðra flóttaleið úr kjallaranum. Jafnframt er óskað eftir stækkun á svölum á norðurhlið og að útistigi verði frá svölum niður í garð. Byggingarmagn á lóðinni er 304,9 m², verður 463,6 m². Nýtingarhlutfall er 0,44 m², verður 0,67 m².
Meðfylgjandi: Skýringaruppdráttur í mkv. 1:500, 1:200 og 1:100 dags. 24. nóv. 2022.
Á fundi skipulagsráðs 28. nóvember 2022 var afgreiðslu frestað.
Þá lagt fram minnisblað skipulagsdeildar 28. nóvember 2022.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
21.8 - 22067538 - Bakkabraut 9-23, reitur 8. Breytt deiliskipulag og byggingaráform.
Lögð fram að nýju umsókn Björns Skaptasonar arkitekts fh. lóðarhafa dags. 26. júní 2022 og breytt 29. september 2022 um breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar - Bakkabraut 1-26, Nesvör 1 og Vesturvör 29, 31 og 33 sem samþykkt var í bæjarstjórn 17. október 2017 ásamt skipulagsskilmálum og skýringarhefti B og birt í B- deild Stjórnartíðinda 22. janúar 2018. Breytingin nær aðeins til hluta deiliskipulagssvæðisins nánar til tekið til Bakkabrautar 9-23. Til að auka gæði íbúða í húsinu eru 34 geymslum sem ráðgerðar voru inni í íbúðum færðar í kjallara og þar með er rými sem er undir burðarvirki hússins nýtt betur. Að auki verður gert ráð fyrir 11 sérgeymslum sem fylgja stórum íbúðum. Byggingarmagn A-rýma í kjallara er aukið um 774 m² og byggingarmagn A-rýma ofanjarðar er aukið um 306 m². Heildarbyggingarmagn á lóð eykst um 1.080 m² og verður um 21.730 m². Lóðin er skráð 10.368 m² og nýtingarhlutfall í heild eykst úr 1.99 í 2.09 Byggingaráform koma fram í skýringarhefti dags. í ágúst 2022 og breytt 29. september 2022 þar sem fram kemur að hönnun og frágangur húsa og lóðar fellur að og er í samræmi við lið 2 og viðmið sem tilgreind eru í almennum ákvæðum í gildandi skipulagsskilmálum. Nýtingarhlutfall hækkar úr 1,9 í 2,2. Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag.
Meðfylgjandi skipulagsuppdráttur í mkv. 1:1000 dags. 10.08.2022 og skýringarhefti B dags. 10. ágúst 2022.
Á fundi skipulagsráðs þann 15. ágúst 2022 var samþykkt með tilvísun 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan yrði auglýst og var málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Á fundi bæjarráðs þann 18. ágúst 2022 var samþykkt að vísa málinu til frekari rýni skipulagsdeildar.
Þá lögð fram breytt byggingaráform dags. 29. september 2022 þar sem fermetrafjöldi verslunar- og þjónusturýma á jarðhæð er aukinn í 970 m² í samræmi við markmið gildandi deiliskipulags.
Á fundi skipulagsráðs 3. október 2022 var samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kynningartíma lauk kl. 13:00, 2. desember 2022, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi með fimm atkvæðum. Uppfærð byggingaráform skulu lögð fyrir skipulagsráð til samþykktar áður en sótt er um byggingarleyfi.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Bakkabraut 9-23 br deiliskipulag_agust 22_ss-A1- landscape
- 2022-2909-Atelier Umsókn um breytingu á deiliskipulagi Reitur 8 Kársnesi
- 20220928_Bakkabraut 9-23_Kársnesi_tillaga að nýjum byggingaráformum-minni
- Bakkabraut 9-23. Byggingaráform 2018
- Bakkabraut 9-23, ný byggingaráform. Skannað
- 22067538 - Glærur skipuagsráð 133
22
Fyrirspurn frá Bergljótu Kristinsdóttur bæjarfulltrúa um íbúðir í félagslegu húsnæðiskerfi Kópavogs
Frá bæjarfulltrúa Bergljótu Kristinsdóttur, dags. 6. desember 2022, lögð fram fyrirspurn um íbúðir í félagslegu húsnæðiskerfi Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarritara.