Beint í efni
Til baka í fundargerðir

SÍK - Erindi frá SÍK varðandi málefni Samstarfsvettvangsins

Málsnúmer: 2210817

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1271. fundur

Lagður fram til kynningar viðaukasamningur við Samstarfssamning milli Kópavogsbæjar og SÍK.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum viðaukasamning við samstarfssamning milli Kópavogsbæjar og SÍK

02

Bæjarráð - 3115. fundur

Lagður fram til kynningar viðaukasamningur við Samstarfssamning milli Kópavogsbæjar og SÍK.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Íþróttaráð - 127. fundur

Lagður fram til kynningar viðaukasamningur við Samstarfssamning milli Kópavogsbæjar og SÍK.

Íþróttaráð samþykkir framlagðan samning fyrir sitt leiti og vísar honum til bæjarráðs.

04

Íþróttaráð - 126. fundur

Lagt fram erindi frá stjórn SÍK, dags. 21. nóvember 2022, þar sem óskað er eftir að verkefni SÍK verði færð aftur til Kópavogsbæjar um áramótin. Einnig kemur fram í erindinu að SÍK mun boða til ársþings félagsins eftir áramót, þar sem lagt verður til að félaginu verði slitið sbr. 19 grein laga þess.

Íþróttaráð felur starfsmönnum íþróttadeildar að gera viðaukasamning við núverandi samstarfssamning Kópavogsbæjar og SÍK um að yfirtaka verkefni SÍK um næstu áramót ásamt hálfu stöðugildi og þeim fjárveitingum sem verkefninu fylgja.

05

Íþróttaráð - 124. fundur

Erindi frá stjórn SÍK, dagsett 25. október 2022, þar sem óskað er eftir að verkefni SÍK færist aftur til bæjarins. Einnig kemur fram í erindinu að stjórn SÍK muni boða til ársþings SÍK eftir áramót, þar sem stjórnin muni leggja til að Samstarfsvettvangi íþróttafélaga í Kópavogi verði slitið.

Lagt fram.