Til baka í fundargerðir
Bollasmári 6. Breytt deiliskipulag. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 23092936
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 151. fundur
Lögð fram fyrirspurn Emils Þórs Guðmundssonar byggingarverkfræðings dags. 28. september 2023 að breytingu á deiliskipulagi f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Bollasmára.
Í gildandi deiliskipulagi er ein íbúð á tveimur hæðum heimiluð á lóðinni og heildarbyggingarmagn 308,6 m². Í breytingunni felst að neðri hæð hússins yrði stækkuð til vesturs um 11 m² undir nýja útbyggingu efri hæðar, sem samþykkt var 2020. Heildarbyggingarmagn yrði því um 320m² eftir breytingu.
Þá lagðir fram uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 1. september 2023, fylgiskjölum fyrirspurnar og minnisblaði skipulagsdeildar dags. 12. október 2023.
Skipulagsráð lítur jákvætt á að framlögð fyrirspurn verði unnin áfram.