Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gjaldskrár 2024

Málsnúmer: 23111688

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1312. fundur

Lagt fram til kynningar uppfærðar gjaldskrár sem taka gildi í janúar 2025. Jafnframt er lagt fram til samþykktar breytt verklag á viðmiði vísitölu vegna fæðisgjalda og tíðni gjaldskrárbreytinga sem á við um þjónustu sem innheimt er einu sinni á önn.

Bæjarstjórn staðfestir með 7 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Kolbeins Reginssonar tillögu að breyttu verklagi á viðmiði vísitölu vegna fæðisgjalda og tíðni gjaldskrárbreytinga

02

Bæjarráð - 3198. fundur

Lagt fram til kynningar uppfærðar gjaldskrár sem taka gildi í janúar 2025. Jafnframt er lagt fram til samþykktar breytt verklag á viðmiði vísitölu vegna fæðisgjalda og tíðni gjaldskrárbreytinga sem á við um þjónustu sem innheimt er einu sinni á önn.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Bæjarráð - 3188. fundur

Lagt fram til kynningar uppfærðar gjaldskár 2024.

Lagt fram.

Bókun:

"Undirrituð árétta beiðni um að fá yfirlit yfir gjaldskrárhækkanir ársins með samanburði við gjaldskrár síðasta árs. Þau gögn sem hér eru lögð fram eru ófullnægjandi til þess að hægt sé að átta sig á hlutfallslegum hækkunum á ársgrundvelli."

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Einar Ö. Þorvarðarson

Helga Jónsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

04

Bæjarráð - 3177. fundur

Lagðar fram til kynningar uppfærðar gjaldskrár.

Lagt fram og kynnt.

05

Bæjarstjórn - 1296. fundur

Lagðar fram til kynningar uppfærðar gjaldskrár mennta- og velferðarsviðs. Einnig lögð fram óbreytt gjaldskrá umhverfissviðs.

Breytingar á gjaldskrá samþykktar með 6 atkvæðum og hjásetu bæjarfulltrúa Erlendar Geirdals, Theodóru S. Þorsteinsdóttir, Helgu Jónsdóttur, Sigurbjargar Erlu Erlendsdóttur og Kolbeins Reginssonar.

06

Bæjarstjórn - 1296. fundur

Lagðar fram til kynningar uppfærðar gjaldskrár mennta- og velferðarsviðs. Einnig lögð fram óbreytt gjaldskrá umhverfissviðs.

07

Bæjarráð - 3168. fundur

Lagðar fram til kynningar uppfærðar gjaldskrár mennta- og velferðarsviðs. Einnig lögð fram óbreytt gjaldskrá umhverfissviðs.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

08

Bæjarstjórn - 1288. fundur

Frá bæjarstjóra, lagðar fram gjaldskrár Kópavogsbæjar fyrir árið 2024.

Á menntasviði er gert er ráð fyrir einskiptishækkun á gjaldskrá fyrir mötuneyti grunnskóla. Mánaðar mataráskrift hækkar um 723 kr. Eða 6,5%, úr 11.127 kr. Þessi einskiptishækkun er gerð vegna mikilla verðlagshækkana á hráefni.

Vísað er í greinargerð með fjárhagsáætlun til frekari upplýsinga.

Einnig lagðar fram gjaldskrár velferðarsviðs.

Gjaldskrár umhverfissviðs eru undir dagskrárlið 6.9.

Forseti bar undir fundinn eftirfarandi tillögur að gjaldskrám til samþykktar:

Gjaldskrá umhverfissviðs fyri árið 2024 (sjá dagskrárlið 6.9)

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur.

Gjaldskrá velferðarsviðs fyrir árið 2024

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur.

Á menntasviði er gert er ráð fyrir einskiptishækkun á gjaldskrá fyrir mötuneyti grunnskóla. Mánaðar mataráskrift hækkar um 723 kr. eða 6,5%, úr 11.127 kr. Þessi einskiptishækkun er gerð vegna mikilla verðlagshækkana á hráefni.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur.

Þær gjaldskrár sem taka vísitöluhækkunum skv. breyttu verklagi, verða lagðar fram í bæjarráði til kynningar áður en hækkanir taka gildi.