Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3188. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Theódóra S Þorsteinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins - kynning

Inga Hlín Pálsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins kynnir starfsemina.

Kynning og umræður.

02

Gjaldskrár 2024

Lagt fram til kynningar uppfærðar gjaldskár 2024.

Lagt fram.

Bókun:

"Undirrituð árétta beiðni um að fá yfirlit yfir gjaldskrárhækkanir ársins með samanburði við gjaldskrár síðasta árs. Þau gögn sem hér eru lögð fram eru ófullnægjandi til þess að hægt sé að átta sig á hlutfallslegum hækkunum á ársgrundvelli."

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Einar Ö. Þorvarðarson

Helga Jónsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

03

Drög að uppfærðum lóðarleigusamningum

Frá umhverfissviði, dags. 17.09.2025, lögð fram til samþykktar drög að uppfærðum lóðaleigusamningum. Um er að ræða annars vegar lóðarleigusamningar fyrir óbyggðar lóðir og hins vegar fyrir endurnýjun lóðarleigusamninga á eldri lóðum.

Bæjarráð frestaði erindinu 19.09.2024. Nú lögð fram greinargerð.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

04

Innkaupastefna og innkaupareglur

Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 19.09.2024, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata og Viðreisnar um innkaupastefnu og innkaupareglur.

Lagt fram.

Bæjarráð samþykkir að fela innkaupadeild að hefja endurskoðun á innkaupareglum Kópavogsbæjar og koma með tillögu til bæjarráðs þess efnis.

05

Gullsmári 13, Félagsheimili eldri borgara, Kópavogsbær. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um veitingarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 23.09.2024 , lögð fram umsögn um umsókn Kópavogsbæjar, kt. 700169-3759, Digranesvegi 1, Kópavogi, um veitingaleyfi í flokki II -G samkomusalir í

Gullsmára 13, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og

skemmtanahald. Afgreiðslutími áfengis er alla daga frá kl. 12:00 -23:00. Mælt er með því við bæjarráð að veitt verði jákvæð umsögn.

Bæjarráð veitir jákvæða umsögn í samræmi við umsögn lögfræðideildar.

06

Bókun 129. fundar svæðisskipulagsnefndar. Starfs- og fjárhagsáætlun 2025

Lögð fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar, starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2025.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2025 og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

07

Umhverfis- og samgöngunefnd - 176. fundur frá 17.09.2024

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

08

Öldungaráð - 26. fundur frá 18.09.2024

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

09

Fundargerð 262. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 14.06.2024

Fundargerð 262. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 14.06.2024

Lagt fram.

10

Fundargerð 263. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 28.06.2024

Fundargerð 263. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 28.06.2024.

Lagt fram.

11

Fundargerð 264. fundar stjórnar Slökkviliðis höfuðborgarsvæðisins frá 16.08.2024

Fundargerð 264. fundar stjórnar Slökkviliðis höfuðborgarsvæðisins frá 16.08.2024

Lagt fram.

12

Fundargerð 585. fundar stjórnar SSH frá 16.09.2024

Fundargerð 585. fundar stjórnar SSH frá 16.09.2024.

Lagt fram.

13

Fundargerð 501. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 14.08.2024

Fundargerð 501. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 14.08.2024.

Lagt fram.

14

Fundargerð 424. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 10.09.2024

Fundargerð 424. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 10.09.2024.

Lagt fram.

15

Fundargerð 129. fundar Svæðisskipulagsnefndar frá 13.09.2024

Fundargerð 129. fundar Svæðisskipulagsnefndar frá 13.09.2024.

Lagt fram.