Tillögur starfshóps um húsnæðismál Slökkviliðs höfuborgarsvæðisins bs.
Málsnúmer: 23121195
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3175. fundur
Erindi barst upphaflega frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins 19. desember 2023, með framkvæmdaáætlun um uppbyggingu slökkvistöðva á höfuðborgarsvæðinu. Í erindinu var óskað eftir lóðarvilyrði fyrir tiltekinni lóð í Tonahvarfi undir slökkvistöð. Erindið var tekið fyrir á 3157. fundi bæjarráðs og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarstjórn tók málið fyrir á 1291. fundi sínum og vísaði málinu að nýju til bæjarráðs til frekari efnismeðferðar.
Málið er nú tekið fyrir að nýju og lögð fram beiðni umhverfissviðs um heimild bæjarráðs til þess að vinna málið áfram í samræmi við framlagt svar, dags. 28. maí 2024, sem miðar að því að undirbúa nauðsynlegar breytingar á deiliskipulagi og stækkun lóðar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til þess að vinna málið áfram í samræmi við beiðni umhverfissviðs.
02
Bæjarstjórn - 1291. fundur
Frá SHS, dags. 18.12.2023, lagðar fram tillögur starfshóps um húsnæðismál Slökkviliðs höfuborgarsvæðisins bs. Tillögurnar hafa verið samþykktar af stjórn SGS og er vísað til umfjöllunar í aðildarsveitarfélgunum. Ekki er gert ráð fyrir að tillögurnar hafi áhrif á fjárhagsáætlanir sveitarfélagana til næstu ára. Fjármálastjórum sveitarfélaganna verði falið að stilla upp tillögu að fjármögnun.
Bæjarstjórn vísar erindinu til bæjarráðs til frekari efnismeðferðar.
03
Bæjarráð - 3157. fundur
Frá SHS, dags. 18.12.2023, lagðar fram tillögur starfshóps um húsnæðismál Slökkviliðs höfuborgarsvæðisins bs. Tillögurnar hafa verið samþykktar af stjórn SGS og er vísað til umfjöllunar í aðildarsveitarfélgunum. Ekki er gert ráð fyrir að tillögurnar hafi áhrif á fjárhagsáætlanir sveitarfélagana til næstu ára. Fjármálastjórum sveitarfélaganna verði falið að stilla upp tillögu að fjármögnun.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.