Velferðarráð - 137. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
- Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllSigrún Bjarnadóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
- Matthías Björnsson - aðalmaður
- Páll Marís Pálsson - aðalmaðurBoðaði forföllSvava Halldóra Friðgeirsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Sameiginlegur fundur velferðarráðs og notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks hófst kl. 16:15 og voru fundarliðir 1 og 2 til umfjöllunar á þessum sameiginlega fundi. Venjubundinn fundur velferðarráðs hófst síðan að því loknu.
Dagskrá fundar
Lagt fram svar umhverfissviðs dags. 26.6.2024 við erindi notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks vegna deiliskipulags.
Velferðarráð lýsir yfir áhyggjum af miklum töfum á framkvæmdum á Fannborgarreit og tengdum reitum í miðbæ Kópavogs og áhrifum þeirra á aðstæður íbúa á svæðinu sem um ræðir. Ráðið skorar á bæjaryfirvöld og lóðarhafa að hraða því eins og kostur er að leggja fram áætlanir um framkvæmdir til að losa íbúa úr þeirri óvissu sem nú ríkir.
Matthías Björnsson mætti til fundar 16:30 undir lið 1 í dagskrá.
- Svar við erindi notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks dags. 26. júní 2024.
- Fskj. 1_Erindi notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks til skipulagsráðs
- Fskj. 2_Br-ASK_nr8_Fannborgarr_Traðarr-v_20210924_STAÐFEST_GRE
- Fskj. 3_Miðbær_deiliskipulgsuppdráttur dags 14 des 2021_stimplaður
- Fskj. 3_Midbær_sérskilmálar deiliskipulags dags. 14. desember 2021_stimplað
- Fskj. 3_Miðbær_greinargerð deiliskipulags dags 14. desember 2021_stimplað
- Fskj 4_Fannborgarreitur - Traðarreitur-vestur - Greinagerð 22.4.2021
- Fskj 5_Greinargerð með endanlegri áætlun_stimplað
- Fskj. 6_Úrskurður í máli nr 5-2022
- Fskj. 7_Miðbær_áætlun_aðgengi á framkvæmdatíma
- Fskj. 8_Fannborgarreituir og Traðareitur vestari_tillaga að bættu aðgengi að bílaskjalla
Lagðar fram til kynningar niðurstöður frumkvæðisathugunar Gæða- og eftirlitsstofnunar á reglum sveitarfélaga um stuðnings- og stoðþjónustu.
Lagt fram.
Lögð fram til afgreiðslu tillaga að samstarfi við Hrafnistu vegna Boðaþings.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að fela sviðsstjóra velferðarsviðs heimild til að ganga til samninga við Hrafnistu um rekstur félagsmiðstöðvarinnar í Boðaþingi með fyrirvara um jákvæða umsögn innkaupadeildar.
Velferðar ráð vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
- Minnisblað 10.10.2024
- Minnisblað vegna samstarfs við Hrafnistu 23.09.24
- Minnisblað Samkomulag um rekstur og starfsemi félagsmiðstöðvar Boðaþings 9.9.24
- Minnisblað Samkomulag um rekstur og starfsemi félagsmiðstöðvar Boðaþings 18.9.24
- Umsögn vegna Hrafnistu 29.9.2024
- Þjónustusamningur um Boðann - Lokadrög.docx
- Kynning Boðinn - Velferðarráð 9.9.24
Áfrýjun dags. 18.9.2024 lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.