Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 126. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hanna Carla Jóhannsdóttir - formaður
  • Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Donata Honkowicz Bukowska - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Donata Honkowicz Bukowska - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Einar Örn Þorvarðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Tryggvi Felixson - aðalmaður
  • Kristgerður Garðarsdóttir - aðalmaður
  • Karen Rúnarsdóttir - aðalmaður
  • Guðný Sigurjónsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Hekla Hannibalsdóttir

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Dagskrártillaga: Tryggvi Felixsson, fulltrúi Vina Kópavogs, leggur til að tillaga um að menntaráð álykti um að Pisa verði bætt á dagskrá fundar. Tillaga felld með 4 atkvæðum gegn 3.

Bókun:
Bókun Tryggva Felixsonar á fundi Menntaráðs 19. mars 2024.
Undirritaður hefur kallað eftir því að eftirfarandi tillaga verði tekin fyrir og afgreidd á fundi Menntaráðs, fyrst á fundi 16. janúar 2024, þar sem málinu var frestað. Menntaráð varð ekki við þeirri ósk undirritaðs að taka málið á dagskrá á fundi dagsins. Þessi afstaða meirihluta nefndarinn er óskiljanleg og vekur spurningar um vilja ráðsins til að taka niðurstöður PÍSA könnunarinnar alvarlega og vinna úr þeim þannig að þær komi að gagni í skólastarfi í Kópavogi.
Tryggvi Felixsson, fulltrúi Vina Kópavogs

Bókun:
Meirihlutinn tekur niðurstöðu PISA könnunar alvarlega, enda hefur Menntaráð beint því til menntasviðs að vinna úr og greina niðurstöður PISA og leggja fram tillögur um umbætur í grunnskólum Kópavogs. Þessi vinna er enn í gangi og því ekki hægt að fjalla um málið núna á meðan niðurstaða þessara greiningar liggur ekki fyrir. Málið verður sett á dagskrá um leið og niðurstaða menntasviðs liggur fyrir.

Hanna Carla Jóhannsdóttir,
Árnína Steinun Kristjánsdóttir,
Sigrún Hulda Jónsdóttir,
Jónas Haukur Einarsson

Dagskrá fundar

01

Fjárhagsáætlun grunnskóla 2024

Farið yfir fjárhagsáætlun grunnskóla.

Sindri Sveinsson, rekstrarstjóri menntasvið, fór yfir helstu þætti fjárhagsáætlunnar sviðsins.

02

Frístundastyrkir 2023

Kynning á nýtingu frístundastyrkja 2023.

Menntaráð þakkar fyrir kynningu Ævars Ólafssonar, rekstrarfulltrúa menntasviðs, á nýtingu frístudastyrks.

Ráðið tekur undir eftirfarandi bókun íþróttaráðs frá 140. fundi þess: Íþróttaráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar góðri nýtingu á frístundastyrknum. Þó er áhyggjuefni hversu börn sem eru ekki með íslenskt ríkisfang nýta styrkinn hlutfallslega verr. Mikilvægt er að fara í enn frekari átaksverkefni til að auka þátttöku þessara barna í íþrótta- og frístundastarfi.

03

Þjónustukönnun frístunda 2024

Kynntar niðurstöður könnunnar sem gerð var meðal foreldra á þjónustu frístunda í grunnskólum Kópavogs.

Menntaráð þakkar Heklu Hannibalsdóttur verkefnastjóri grunnskóladeildar, fyrir góða og gagnlega kynningur. Ráðið styður áform um að fylgja eftir umbótum á grunndvell niðurstaðna könnunnar. Áhyggjuefni er hversu dræm þátttaka var í könnunni því er mikilvægt að endurtaka hana á næsta skólaári og leita leiða til að ná til fleirri foreldra.

04

Kópurinn 2024

Reglur um Kópinn lagðar fram til rýni ásamt minnisblaði um tilhögun Kópsins 2024.

Menntaráð gerir ekki athugasemdir við reglur Kópsins, viðkenningar menntaráðs.

Valnefnd Kópsins, er skipuð af Hönnu Cörlu Jóhannsdóttur, Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur og Karen Rúnarsdóttur. Til vara Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Tryggvi Felixsson og Gunnhildur Sveinsdóttir.

05

Forvarnarsjóður Kópavogs - úthlutunnarreglur

Reglur um Fovarnarsjóð Kópavogs lagðar fram til rýni ásamt tillögu að áherslum sjóðsins og skipulagi árið 2024.

Menntaráð gerir ekki athugasemdir við reglur Forvarnarsjóð Kópavogs, tillögu um áherslur sjóðsins í ár samþykktar með öllum greiddum atkvæðum.

Valnefnd forvarnarsjóðs, skipuð af Jónasi Hauk Einarssyn, Donata H Bukowska og Karen Rúnarsdóttur. Til vara Sigrún Hulda Jónsdóttir, Þorvar Hafsteinsson og Gunnhildur Sveinsdóttir

06

Okkar skóli

Kynning á framkvæmd verkefnisins Okkar skóli lagt fram.

Lagt fram.

07

Menntasvið-Fundargerðir íþróttaráðs 2022 -2024

140. fundargerð íþróttaráðs lögð fram.

Lagt fram.

08

Menntasvið-Fundargerðir leikskólanefndar 2022-2024

161. fundargerð leikskólanefndar lögð fram til kynningar.

Lagt fram.