Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðarráði óskar eftir minnisblaði um málefni heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir
Málsnúmer: 24042372
Ferill máls
01
Velferðarráð - 134. fundur
Afgreiðslu á tillögu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur aðalmanns Pírata að bókun velferðarráðs var frestað á síðasta fundi ráðsins og er því lögð fyrir að nýju til afgreiðslu.
Einar Örn Þorvarðarson aðalmaður Viðreisnar, Hólmfríður Hilmarsdóttir aðalmaður Vina Kópavogs og Erlendur H. Geirdal áheyrnarfulltrúi Samfylkingar tóku undir tillögu Sigurbjargar að bókun velferðarráðs.
Tillagan er svohljóðandi:
"Velferðarráð samþykkir að við endurskoðun velferðarstefnu Kópavogs haustið 2024 verði mótuð stefna Kópavogsbæjar í málefnum heimilislausra. Stefnan mæli fyrir um hvernig þjónustu við heimilislausa skuli háttað og taki mið af þörfum hópsins, byggi á skaðaminnkandi nálgun og miði að því að tryggja hópnum aðgengi að þjónustu og húsnæði án strangra skilyrða. Í samræmi við tillögur skýrslu verkefnastjóra samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra verði unnið út frá kjarna þeirrar hugmyndafræði að húsnæði sé grunnþörf sem þarf að mæta áður en tekist er á við annan vanda sem einstaklingur kann að kljást við, svo sem fíkni-og/eða geðvanda."
Velferðarráð samþykkir að við endurskoðun velferðarstefnu Kópavogs haustið 2024 verði mótuð stefna Kópavogsbæjar í málefnum heimilislausra. Stefnan mæli fyrir um hvernig þjónustu við heimilislausa skuli háttað og taki mið af þörfum hópsins, byggi á skaðaminnkandi nálgun og miði að því að tryggja hópnum aðgengi að þjónustu og húsnæði án strangra skilyrða. Í samræmi við tillögur skýrslu verkefnastjóra samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra verði unnið út frá kjarna þeirrar hugmyndafræði að húsnæði sé grunnþörf sem þarf að mæta áður en tekist er á við annan vanda sem einstaklingur kann að kljást við, svo sem fíkni-og/eða geðvanda.
02
Velferðarráð - 133. fundur
Minnisblað sviðsstjóra dags. 22.5.2024 ásamt tilgreindum fylgiskjölum lagt fram.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata leggur til eftirfarandi bókun velferðarráðs:
"Velferðarráð samþykkir að við endurskoðun velferðarstefnu Kópavogs haustið 2024 verði mótuð stefna Kópavogsbæjar í málefnum heimilislausra. Stefnan mæli fyrir um hvernig þjónustu við heimilislausa skuli háttað og taki mið af þörfum hópsins, byggi á skaðaminnkandi nálgun og miði að því að tryggja hópnum aðgengi að þjónustu og húsnæði án strangra skilyrða. Í samræmi við tillögur skýrslu verkefnastjóra samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra verði unnið út frá kjarna þeirrar hugmyndafræði að húsnæði sé grunnþörf sem þarf að mæta áður en tekist er á við annan vanda sem einstaklingur kann að kljást við, svo sem fíkni-og/eða geðvanda."
Björg Baldursdóttir formaður leggur til að afgreiðslu tillögunar verði frestað til næsta fundar ráðsins.
Frestun var samþykkt með fjórum atkvæðum Bjargar Baldursdóttur, Matthíasar Björnssonar, Páls Marís Pálssonar og Sigrúnar Bjarnadóttur og hjásetu Einars Arnar Þorvarðarsonar, Hólmfríðar Hilmarsdóttur og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.
Einar Örn Þorvarðarson aðalmaður Viðreisnar, Hólmfríður Hilmarsdóttir aðalmaður Vina Kópavogs og Erlendur H. Geirdal áheyrnarfulltrúi Samfylkingar taka undir tillögu Sigurbjargar að bókun velferðarráðs.
03
Velferðarráð - 132. fundur
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðarráði óskar eftir að fá minnisblað um samráðsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem Kópavogsbær tók þátt í, um málefni heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir.
Hver er staða mála varðandi þetta verkefni í Kópavogi og hvað er áætlað að gera á þessu ári í þessum málaflokki?
Velferðarráð vísar málinu til úrvinnslu hjá sviðsstjóra velferðarsviðs.