Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðarráð - 134. fundur

í Vallakór 4

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Erlendur H. Geirdal - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
  • Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Beiðni um viljayfirlýsingu vegna kaupa Þroskahjálpar á íbúðum fyrir fatlað fólk

Minnisblað skrifstofustjóra dags. 12.6.2024 lagt fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar.

02

Tillaga starfshóps um helgaropnun

Minnisblað skrifstofustjóra og forstöðumanns félagsmiðstöðva dags. 4.6.2024 lagt fram til kynningar.

Velferðarráð lýsir ánægju með framkomnar tillögur og vísar málinu til umsagnar í öldungaráði.

03

Kæra nr. 142-2024. Félagslegt leiguhúsnæði

Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála vegna uppsagnar á húsaleigusamningi dags. 16.5.2024 lagður fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar.

04

Niðurstöður frumkvæðisathugunar á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á heimasíðum

Niðurstöður frumkvæðisathugunar Gæða- og eftirlitsstofnunar á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á heimasíðum sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.

Velferðarráð vísar málinu til kynningar í notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.

05

Endurskoðun á reglum um NPA 2024

Breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk lagðar fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkir breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn.

06

Áfrýjun umsóknar um stuðningsþjónustu

Áfrýjun dags. 14.5.2024 ásamt tilgreindum fylgiskjölum lögð fram til afgreiðslu að nýju.

07

Vistun barna utan heimilis 2024

Minnisblað skrifstofustjóra dags. 12.6.2024 lagt fram til kynningar.

Velferðráð þakkar fyrir kynninguna.

Velferðarráð lýsir áhyggjum af fjölda barna í vistun utan heimilis, þyngd mála og skorti á úrræðum. Vonir voru bundnar við að tillögur starfshóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda næðu fram að ganga og eru það vonbrigði hve seint hefur gengið að koma fram með raunhæfa og tímasetta aðgerðaáætlun.

08

Reglur um fjárhagsaðstoð

Minnisblað skrifstofustjóra dags. 11.6.2024 lagt fram til kynningar.

Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.

09

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðarráði óskar eftir minnisblaði um málefni heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir

Afgreiðslu á tillögu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur aðalmanns Pírata að bókun velferðarráðs var frestað á síðasta fundi ráðsins og er því lögð fyrir að nýju til afgreiðslu.

Einar Örn Þorvarðarson aðalmaður Viðreisnar, Hólmfríður Hilmarsdóttir aðalmaður Vina Kópavogs og Erlendur H. Geirdal áheyrnarfulltrúi Samfylkingar tóku undir tillögu Sigurbjargar að bókun velferðarráðs.

Tillagan er svohljóðandi:

"Velferðarráð samþykkir að við endurskoðun velferðarstefnu Kópavogs haustið 2024 verði mótuð stefna Kópavogsbæjar í málefnum heimilislausra. Stefnan mæli fyrir um hvernig þjónustu við heimilislausa skuli háttað og taki mið af þörfum hópsins, byggi á skaðaminnkandi nálgun og miði að því að tryggja hópnum aðgengi að þjónustu og húsnæði án strangra skilyrða. Í samræmi við tillögur skýrslu verkefnastjóra samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra verði unnið út frá kjarna þeirrar hugmyndafræði að húsnæði sé grunnþörf sem þarf að mæta áður en tekist er á við annan vanda sem einstaklingur kann að kljást við, svo sem fíkni-og/eða geðvanda."

Velferðarráð samþykkir að við endurskoðun velferðarstefnu Kópavogs haustið 2024 verði mótuð stefna Kópavogsbæjar í málefnum heimilislausra. Stefnan mæli fyrir um hvernig þjónustu við heimilislausa skuli háttað og taki mið af þörfum hópsins, byggi á skaðaminnkandi nálgun og miði að því að tryggja hópnum aðgengi að þjónustu og húsnæði án strangra skilyrða. Í samræmi við tillögur skýrslu verkefnastjóra samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra verði unnið út frá kjarna þeirrar hugmyndafræði að húsnæði sé grunnþörf sem þarf að mæta áður en tekist er á við annan vanda sem einstaklingur kann að kljást við, svo sem fíkni-og/eða geðvanda.

10

Stefnumótun - nefndir ráð

Sviðsstjóri og verkefnastjóri velferðarsviðs kynna framgang aðgerða í aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2024.

Velferðarráð þakkar fyrir góða kynningu.

11

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.