Úthlutun Vatnsendahvarfs. 2. áfangi
Málsnúmer: 24051700
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1318. fundur
Frá yfirlögfræðingi, lögð fram tillaga að úthlutun lóða fyrir annan áfanga Vatnsendahvarfs.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Hákons Gunnarssonar og Thelmu Árnadóttur framlagða tillögu að úthlutun lóða í 2. áfanga Vatnsendahvarfi.
02
Bæjarráð - 3211. fundur
Frá yfirlögfræðingi, lögð fram tillaga að úthlutun lóða fyrir annan áfanga Vatnsendahvarfs.
Umræður.
Bæjaráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að leggja til við bæjarstjórn að framlögð tillaga að úthlutun lóða í 2. áfanga Vatnsendahvarfs verði samþykkt.
03
Bæjarstjórn - 1301. fundur
Lögð fram að nýju drög að úthlutunarskilmálum vegna úthlutunar 2. áfanga Vatnsendahvarfs. Málinu var frestað á fundi bæjarráðs þann 16. maí sl.
Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Telmu Árnadóttur og Bergljótar Kristinsdóttur framlögð drög að úthlutunarskilmálum 2. áfanga Vatnsendahvarfs.
04
Bæjarráð - 3175. fundur
Lögð fram að nýju drög að úthlutunarskilmálum vegna úthlutunar 2. áfanga Vatnsendahvarfs. Málinu var frestað á fundi bæjarráðs þann 16. maí sl.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bókun:
"Með samþykkt þessara úthlutunarskilmála eru virtar að vettugi skuldbindingar bæjarfélagsins lögum samkvæmt sem og í húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar, aðalskipulagi Kópavogsbæjar og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins um framboð á húsnæði á viðráðanlegu verði til að fullnægja búsetuþörfum allra félagshópa.
Afgreiðsla meirihlutans á úthlutunarskilmálunum tekur ekkert mið af þessum skuldbindingum og markmiðum, sem byggjast á þeirri reynslu að markaðurinn hefur ekki getað leyst þær fjölbreyttu þarfir sem ungir, tekjulágir, námsmenn og fleiri hópar samfélagsins hafa. Kópavogsbær hefur ekki staðið að almennri lóðaúthlutun í 9 ár en því miður tapast hér gullið tækifæri til að leiðrétta þá skekkju, sem orðið hefur með uppbyggingu fjárfesta á þróunarreitum þar sem arðsemiskrafa er leiðarljósið."
Bergljót Kristinsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir
Bókun:
"Í þessari úthlutun er nær eingöngu um par-, rað- og einbýlishús að ræða. Meiri- og minnihluta greinir á um leiðir að því marki hvernig sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Hér er verið að auka framboð á lóðum í Kópavogi og slíkt framboð kemur öllum húsnæðismarkaðinum til góða. Mikið hefur verið kallað eftir auknu framboði íbúða á almennan markað og hér er brugðist við því ákalli."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri Steinn Hilmarsson
05
Bæjarráð - 3173. fundur
Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að úthlutunarskilmálum vegna úthlutunar lóða í 2. áfanga Vatnsendahvarfs.
Bæjarráð frestar erindinu.