Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3173. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Staða uppbyggingar nýs Kársnesskóla

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir febrúar og mars 2024.

Kynning og umræður.

02

Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024

Frá fjármálasviði, lagðir fram viðaukar við fjárhagsáætlun 2024. Viðauki nr. 1 er vegna hækkunar launakostnaður frá maí - desember 2024 vegna afleysinga í veikindaleyfi. Viðauki nr. 2 er vegna kostnaðar við breytingar á húsnæði velferðarsviðs að Vallarkór 4 sem velferðarsvið er að flyta í.

Bæjarráð samþykkir viðaukana fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

03

Starfshópur - heildarsýn fyrir Kópavogsdal

Lagðar fram tillögur starfshóps um heildarsýn fyrir Kópavogsdal.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

04

Spretthópur - rýni mötuneyta

Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 08.05.2024, lagt fram minnisblað frá spretthópi um rýni mötuneyta.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

05

Úthlutun Vatnsendahvarfs. 2. áfangi

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að úthlutunarskilmálum vegna úthlutunar lóða í 2. áfanga Vatnsendahvarfs.

Bæjarráð frestar erindinu.

06

Fagraþing 2A - Stefna

Frá bæjarlögmanni, lagður fram dómur í máli nr. E-1864/2022.

Lagt fram.

07

Menntasvið-Ráðning skólastjóra samrekins leik- og grunnskóla við Skólagerði

Frá menntasviði, lögð fram tillaga og rökstuðningur vegna ráðningar í stöðu skólastjóra samrekins leik- og grunnskóla við Skólagerði.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að ráða Heimi Eyvindarson í starf skólastjóra samrekins leik- og grunnskóla við Skólagerði.

08

Menntasvið-Ráðning skólastjóra Kóraskóla

Frá menntasviði, lögð fram tillaga og rökstuðningur vegna ráðningar í stöðu skólastjóra Kóraskóla.

Bæjarráð samþykkir með finnm atkvæðum að ráða Ingu Fjólu Sigurðardóttur í starf skólastjóra Kóraskóla.

09

Borgarholtsbraut 19, Mossley, Kársnes ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 13.05.2024, lögð fram umsögn um umsókn Kársnes ehf. (Mossley) um tækifærisleyfi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðu að veita jákvæða umsögn með vísan í minnisblað lögfræðideildar.

10

Beiðni um þátttöku að nágrannagjöf fyrir Grindavík

Frá Garðlist, dags. 29.04.2024, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir framlagi frá Kópavogsbæ til gjafar til handa Grindvíkinga.

Bæjarráð frestar erindinu.

11

Ályktun Félags héraðsskjalavarða á Íslandi

Frá félagi héraðasskjalavarða á Íslandi, dags. 13.05.2024, lögð fram ályktun varðandi ákvörðun Kópavogsbæjar um niðurlagningu starfs héraðsskjalavarðar og lokun Hérðasskjalasafns Kópavogs.

Lagt fram.

12

Til umsagnar frumvarp til laga um lögræðislög (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.), 925. mál

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um lögræðislög (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.), 925. mál.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs.

13

Umsókn um stofnframlög vegna íbúðakaupa í Kópavogi 2024-2025

Frá Brynju leigufélagi ses., dags. 12.04.2024, lögð fram umsókn um stofnframlög vegna íbúðakaupa í Kópavogi 2024.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umsókn um stofnframlag í samræmi við erindi bréfritara.

14

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 392. fundur frá 03.05.2024

Fundargerð í 10 liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

15

Hafnarstjórn - 135. fundur frá 07.05.2024

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

Bókun:

"Bæjarráð beinir því til bæjarstjóra að fram fari átak í hreinsun á hafnarsvæði Kópavogsbæjar."


15.1 - 2209827 - Gjaldskrá Kópavogshafnar 2024

Lögð fram gjaldskrá Kópavogshafnar vegna leiðréttra gjalda.

Hafnarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá með öllum greiddum atkvæðum.

Bæjarráð vísar framlagðri gjaldskrá til staðfestingar bæjarstjórnar.


16

Fundargerð 23. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnaness frá 29.04.2024

Fundargerð 23. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnaness frá 29.04.2024.

Lagt fram.

17

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 18.04.2024

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 18.04.2024.

Lagt fram.

18

Fundargerð 391. fundar stjórnar Strætó frá 02.04.2024

Fundargerð 391. fundar stjórnar Strætó frá 02.04.2024.

Lagt fram.

19

Fundargerð 392. fundar stjórnar Strætó frá 29.04.2024

Fundargerð 392. fundar stjórnar Strætó frá 29.04.2024.

Lagt fram.

20

Fundargerð 578. fundar stjórnar SSH frá 06.05.2024

Fundargerð 578. fundar stjórnar SSH frá 06.05.2024.

Lagt fram.

21

Fundargerð 127. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 03.05.2024

Fundargerð 127. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 03.05.2024.

Lagt fram.