Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kópavogstún 14. Viljayfirlýsing.

Málsnúmer: 24071773

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3255. fundur

Frá bæjarstjóra dags. 28.04.2026, lögð fram drög að viljayfirlýsingu vegna samstarfs Kópavogsbæjar og Lionsklúbbs Kópavogs um endurbætur á véla -og verkfærageymslu, í daglegu tali nefnd Hlaðan, á lóðinni nr. 14 við Kópavogstún.

Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 30.04.2026. Nú lögð fram uppfærð drög að viljayfirlýsingu.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að viljayfirlýsingu við Lionsklúbb Kópavogs og fagnar áframhaldandi samstarfi við Lionsklúbb Kópavogs um mikilvægt framfara mál.

02

Bæjarráð - 3254. fundur

Frá lögfræðiþjónustu, dags. 28.04.2026, lögð fram drög að viljayfirlýsingu vegna samstarfs Kópavogsbæjar og Lionsklúbbs Kópavogs vegna endurbóta á véla -og verkfærageymslu, í daglegu tali nefnd „Hlaðan“, á lóðinni nr. 14 við Kópavogstún.

Frestað til næsta fundar.