Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3255. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Jóhanna Pálsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hákon Gunnarsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Fyrirspurn frá öllum oddvitum minnihlutans. Hvaða innstreymi hefur verið í bæjarsjóð vegna byggingarréttargjalda og annarra lóðagjalda

Frá deildarstjóra greiningardeildar, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi innstreymi vegna byggingarréttargjalda og annarra ólögbundinna lóðagjalda frá árinu 2023.

Umræður

Lagt fram.

Endurskoðað svar verður lagt fram á næsta fundi í samræmi við umræður.

Gestir viku af fundi kl. 9:03.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Kópavogstún 14. Viljayfirlýsing.

Frá bæjarstjóra dags. 28.04.2026, lögð fram drög að viljayfirlýsingu vegna samstarfs Kópavogsbæjar og Lionsklúbbs Kópavogs um endurbætur á véla -og verkfærageymslu, í daglegu tali nefnd Hlaðan, á lóðinni nr. 14 við Kópavogstún.

Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 30.04.2026. Nú lögð fram uppfærð drög að viljayfirlýsingu.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að viljayfirlýsingu við Lionsklúbb Kópavogs og fagnar áframhaldandi samstarfi við Lionsklúbb Kópavogs um mikilvægt framfara mál.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Vatnsendahvarf, lóðarúthlutun

Frá umhverfissviði, tillaga að úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi.

Bæjarráð vísar framlögðum tillögum að lóðaúthlutunum og til afgreiðslu bæjarstjórnar með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Jóhönnu Pálsdóttur.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Svar við fyrirspurn frá bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur varðandi úrræði fyrir börn og ungmenni

Frá menntasviði, lögð fram samantekt við fyrirspurn um hvaða úrræði sveitarfélagið veitir fyrir börn og ungmenni hvað varðar félagastamtök og aðra stuðningsþjónustu.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Kæra Ístaks hf. vegna útboðs Kópavogsbæjar nr. 2402380

Lögð fram kæra Ístaks vegna ákvörðunar Kópavogsbæjar að velja tilboð ÞG verktaka í útboði nr. 2402380 - hönnun og bygging knattspyrnuleikvangs fyrir Kórinn.

Lagt fram.

Umræður.

Ýmis erindi

07

Seinni hluti kosningaátaks - efni til miðlunar

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 28.04.2026, lagt fram erindi varðandi lýðræðislega þátttöku á sveitarstjórnarastiginu.

Lagt fram.

Ýmis erindi

08

Boð á ársfund NTÍ

Frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands, dags. 28.04.2026, lagt fram fundarboð vegna ársfundar sem fram fer 21. maí nk.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

09

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 442. fundur frá 24.04.2026

Fundargerð í 15 liðum.

Visað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

10

Innkaupanefnd - 17. fundur frá 04.05.2026

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Menntaráð - 162. fundur frá 05.05.2026

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Skipulags- og umhverfisráð - 28. fundur frá 04.05.2026

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.


12.3 - 2602358 - Dalsmári 9-11. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Jakobs Emils Líndal arkitekts dags. 3. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9-11 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst 3.780 m² lóðarstækkun til norðurs og 4.000 m² nýbygging á tveimur hæðum sem tengist núverandi húsnæði á lóð með tengigangi. Lóðarstækkunin fer að hluta til yfir á svæði með landnotkun skilgreinda í aðalskipulagi sem opið svæði, OP-221, en er að öðru leiti innan íþróttasvæðis, ÍÞ-4. Tillagan leggur undir sig núverandi útitennisvelli og útivistarsvæði. Uppdrættir dags. 3. mars 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026.

Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


Fundargerðir nefnda

13

Fundargerð 437. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29.04.2026

Fundargerð 437. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29.04.2026.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14

Fundargerð 44. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.04.2026

Fundargerð 44. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.04.2026.

Lagt fram.