Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3254. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Orri Vignir Hlöðversson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Theódóra S Þorsteinsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Jóhanna Pálsdóttir - varafulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari
  • Jóhanna Pálsdóttir

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Kópavogstún 14. Drög að viljayfirlýsingu.

Frá lögfræðiþjónustu, dags. 28.04.2026, lögð fram drög að viljayfirlýsingu vegna samstarfs Kópavogsbæjar og Lionsklúbbs Kópavogs vegna endurbóta á véla -og verkfærageymslu, í daglegu tali nefnd „Hlaðan“, á lóðinni nr. 14 við Kópavogstún.

Frestað til næsta fundar.

02

Kópavogsgerði 8, Geðræktarhús - drög að leigusamningi

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að leigusamningi milli Kópavogsbæjar og Alzheimersamtakanna á Íslandi.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að leigusamningi milli Kópavogsbæjar og Alzheimnersamtakanna á Íslandi.

03

Minnisblað - þjónustumiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG)<br/><br/>

Frá bæjarstjóra, lagt fram minnisblað varðandi uppbyggingu GKG á nýrri þjónustumiðstöð golfvalla GKG í Garðabæ.

Lagt fram.

Umræður.

Fundarhlé hófst kl. 9:43, fundi fram haldið kl. 10:33

Bókun:

"Á fundi bæjarráðs 2. október 2025 samþykkti bæjarráð með öllum atkvæðum að vísa erindi GKG til umsagnar bæjarstjóra. Umsögnin á að fela í sér upplýsingar um stöðu Kópavogsbæjar og svigrúm til að verða við erindinu um uppbyggingu þjónustumiðstöðvar fyrir golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar. Því er áréttað að bæjarstjóri leggi fyrir fund bæjarráðs fjárfestingaráætlun Kópavogsbæjar til sama árabils og samningur við GKG myndi taka.

Við svona ákvörðun verður að liggja fyrir hversu mikil útgjöld fylgja fjárfestingum sem Kópavogsbær hefur þegar ákveðið og hvernig þau skiptast á málaflokka m.a. með tilliti til þess hvaða verkefni eru lögbundin og óhjákvæmileg. Einnig þarf að áætla fyrir rekstrarkostnaði þeirra mannvirkja sem Kópavogsbær reisir til eigin nota. Þá þarf að áætla hvernig skatttekjur bæjarins á tímabilinu eiga að standa undir fjárfestingarákvörðunum."

Helga Jónsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Jóhanna Pálsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir vék af fundi kl. 9:49.


Bókun:

"Þessar upplýsingar munu að sjálfsögðu allar liggja fyrir áður en samningur verður lagður fyrir til samþykktar."

Hjördís Ýr Johnson

Ásdís Kristjánsdóttir

Björg Baldursdóttir

Andri Steinn Hilmarsson


Bókun:

"Nauðsynlegt er að fá greiningu á getu Kópavogsbæjar til fjárfestinga á næstu árum áður en lengra er haldið."

Helga Jónsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Jóhanna Pálsdóttir


Bókun:

"Meirihlutanum þykir miður að sjá Samfylkinguna, Viðreisn og Vini Kópavogs spila pólitíska tafarleiki í þessu máli sem er aðkallandi fyrir golfklúbb GKG. Upplýsingar um áhrif á fjárfestingaráætlun verða lagðar fram þegar samningur um uppbygginguna og allar forsendur liggja fyrir til að bæjarráð geti tekið upplýsta ákvörðun."

Hjördís Ýr Johnson

Ásdís Kristjánsdóttir

Björg Baldursdóttir

Andri Steinn Hilmarsson


Bókun:

"Upplýsingar eftir að samningur hefur verið gerður duga ekki til. Það er ekki tafaleikur að fara fram á upplýsingar sem eru nauðsynleg forsenda ákvörðunar."

Helga Jónsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Jóhanna Pálsdóttir


Bókun:

"Við vísum til fyrri bókana."

Hjördís Ýr Johnson

Ásdís Kristjánsdóttir

Björg Baldursdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

04

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Frá lögfræðiþjónustu, lagður fram starfsmannalisti undirkjörstjórna, auk staðsetningar kjörstaða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

05

Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2026

Frá Landskerfi bókasafna, 17.04.2026, lagt fram fundarboð vegna aðalfundar er haldinn verður 12.05.2026.

Lagt fram.

06

Til umsagnar 595. mál - Loftslagslög

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 24.04.2026, lagt fram til umsagnar 595. mál - Loftslagslög.

Lagt fram.

07

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 441. fundur frá 10.04.2026

Fundargerð í níu liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

08

Menntaráð - 161. fundur frá 21.04.2026

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

09

Menningar- og mannlífsnefnd - 14. fundur frá 17.04.2026

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

10

Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur frá 20.04.2026

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.


10.4 - 25111111 - Kópavogsbraut 20. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram byggingarleyfisumsókn Gests Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Kópavogsbraut. Sótt er um að byggja glerskála/gróðurhús við vesturhlið núverandi íbúðarhúss og tvær viðbyggingar við suður- og norðurhlið bifreiðageymslu, samtals 250 m² að flatarmáli. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,19 í 0,34 við breytinguna. Uppdrættir dags. 15. apríl 2025, uppfærðir 25. september 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 13. janúar til 26. febrúar 2026, athugasemdir bárust. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026, uppfært 21. apríl 2026.

Ester Anna Ármannsdóttir gerði grein fyrir erindinu og vék af fundi að því loknu.

Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


11

Leikskólanefnd - 179. fundur frá 16.04.2026

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

Mál nr. 7 á dagskrá nefndarinnar:

Bæjarráð vísar því til menntasviðs að gæta að samræmis með hagsæld barna að leiðarljósi.

12

Fundargerð 145. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 10.04.2026

Fundargerð 145. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 10.04.2026.

Lagt fram.

13

Fundargerð 626. fundar stjórnar SSH frá 20.04.2026

Fundargerð 626. fundar stjórnar SSH frá 20.04.2026.

Lagt fram.

14

Fundargerð 436. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 22.04.2026

Fundargerð 436. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 22.04.2026.

Lagt fram.

15

Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.04.2026

Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.04.2026.

Lagt fram.