Fjárstuðningur Kópavogsbæjar við stjórnmálaflokka
Málsnúmer: 25012440
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3203. fundur
Frá bæjarritara, dags. 4. febrúar, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarstjóra frá 30.01.2025.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 9:55, fundi fram haldið kl. 10:12
Bókun:
"Þeir flokkar sem sitja í bæjarstjórn Kópavogs bera ábyrgð á því að uppfylla lagaskilyrði um starfsemi stjórnmálaflokka. Markmið laganna er að auka traust á stjórnmálastarfsemi, tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka og efla lýðræði og gagnsæi. Kópavogsbær mun jafnframt endurskoða verklagið hjá sér til að tryggja að styrkir séu greiddir í samræmi við lög og reglur."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson
Bókun:
"Kópavogsbær ber ábyrgð á framkvæmd laga nr.162/2006 um starfsemi stjórnmálaflokka. Kópavogsbær greiðir á grundvelli laganna út styrki til þeirra sem fullnægja lagaskilyrðum án þess að umsóknir berist frá flokkunum. Engin leiðsögn hefur fylgt greiðslum Kópavogsbæjar um að skrá þyrfti starfsemi hjá ríkisskattstjóra eða ríkisendurskoðanda. Vinir Kópavogs brugðust við um leið og umræða hófst um þessi mál og hafa gert ráðstafanir til að skrá starfsemi sína með réttum hætti."
Helga Jónsdóttir
02
Bæjarráð - 3202. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram svohljóðandi fyrirspurn um styrki sveitarfélagsins til sjórnmálaflokka:
"Undirrituð óskar eftir að teknar verði saman upplýsingar um styrki sveitarfélagsins til stjórnmálasamtaka og hvort styrkþegar uppfylli skilyrði til laganna. Samantektin taki til yfirstandandi kjörtímabils."
Ásdís Kristjánsdóttir.
Bæjarráð vísar fyrirspurninni til umsagnar bæjarritara.