Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3203. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Jóhanna Pálsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Okkar Kópavogur 2024 - 2027

Frá verkefnastjóra íbúatengsla, lagðar fram og kynntar niðurstöður rafrænna kosninga Okkar Kópavogs sem fram fóru dagana 23. janúar til 6. febrúar 2025.

Kynning og umræður.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Þjónustukönnun sveitarfélaga 2024 - Gallup

Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2024 sem unnin var af Gallup. Málinu var frestað 30. janúar sl.

Kynning og umræður.

Bæjarráð felur velferðarráði að taka til skoðunar niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar það sem snýr að þjónustu við fatlað fólk.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Fjárstuðningur Kópavogsbæjar við stjórnmálaflokka

Frá bæjarritara, dags. 4. febrúar, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarstjóra frá 30.01.2025.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 9:55, fundi fram haldið kl. 10:12

Bókun:

"Þeir flokkar sem sitja í bæjarstjórn Kópavogs bera ábyrgð á því að uppfylla lagaskilyrði um starfsemi stjórnmálaflokka. Markmið laganna er að auka traust á stjórnmálastarfsemi, tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka og efla lýðræði og gagnsæi. Kópavogsbær mun jafnframt endurskoða verklagið hjá sér til að tryggja að styrkir séu greiddir í samræmi við lög og reglur."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

Bókun:

"Kópavogsbær ber ábyrgð á framkvæmd laga nr.162/2006 um starfsemi stjórnmálaflokka. Kópavogsbær greiðir á grundvelli laganna út styrki til þeirra sem fullnægja lagaskilyrðum án þess að umsóknir berist frá flokkunum. Engin leiðsögn hefur fylgt greiðslum Kópavogsbæjar um að skrá þyrfti starfsemi hjá ríkisskattstjóra eða ríkisendurskoðanda. Vinir Kópavogs brugðust við um leið og umræða hófst um þessi mál og hafa gert ráðstafanir til að skrá starfsemi sína með réttum hætti."

Helga Jónsdóttir

Ýmis erindi

04

Nónsmári 1-17. breytt deiliskipulag. Beiðni um endurupptöku máls

Frá Nónhæð ehf. lögð fram beiðni um endurupptöku máls.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.

Ýmis erindi

05

Beiðni um afgreiðslu vegna endurfjármögnun láns

Frá Sorpu bs. dags. 29.01.2025, lögð fram beiðni um afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar vegna endurfjármögnum láns.

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

06

Styrkbeiðni við verkefni tengt dýravelferð

Frá Dýravaktinni, dags. 30.01.2025, lögð fram beiðni um styrk.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara.

Ýmis erindi

07

Skráning kyns á eyðublöðum og í annarri gagnasöfnun

Frá Innviðaráðuneytinu, dags. 29.01.2025, lagt fram erindi varðandi skráningu kyns á eyðublöðum og öðrum gagnasöfnum.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu jafnréttisfulltrúa.

Fundargerðir nefnda

08

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 411. fundur frá 31.01.2025

Fundargerð í fjórum liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

09

Skipulags- og umhverfisráð - 2. fundur frá 03.02.2025

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.


9.5 - 2412222 - Dalvegur 32A, B og C. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Sigurðar Halldórssonar arkitekts dags. 3. desember 2024 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 32A, B og C við Dalveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst hliðrun inn-/útkeyrslu við Dalveg vegna hæðarlegu og til þess að bæta umferðarflæði. Aukning byggingarmagns neðanjarðar úr 3205 m² í 6250 m² fyrir bílageymslu, hjólageymslur, starfsmannaaðstöðu og geymslu- og tæknirými ásamt því að hluti bílastæða ofanjarðar á lóðinni verður fluttur í bílageymslu neðanjarðar. Heildarfjöldi bílastæða á lóðinni er óbreyttur. Þá eru gerðar breytingar á tengingum göngu- og hjólastíga innan lóðarinnar við göngu- og hjólastíga Kópavogsbæjar sem liggja austan við lóðina. Jafnframt er byggingarreitur ofanjarðar stækkaður um 50 cm til suðurs og austurs (að Reykjanesbraut). Hámark byggingarmagns ofanjarðar er óbreytt fyrir Dalveg 32C 9894 m².
Uppdrættir í mkv. 1:1000 dags. 15. janúar 2025.
Einnig lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 31. janúar 2025.

Samþykkt að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi verði auglýst með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


Fundargerðir nefnda

10

Leikskólanefnd - 169. fundur frá 04.02.2025

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Menntaráð - 138. fundur frá 04.02.2025

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 1. fundur frá 04.02.2025

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13

Fundargerð 962. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 22.01.2025

Fundargerð 962. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 22.01.2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 07.02.2024

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 07.02.2024.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15

Fundargerð 595. fundar stjórnar SSH frá 20.01.2025

Fundargerð 595. fundar stjórnar SSH frá 20.01.2025

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16

Fundargerð 426. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 30.01.2025

Fundargerð 426. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 30.01.2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17

Fundargerð 961. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.01.2025

Fundargerð 961. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.01.2025.

Lagt fram.