Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stígakerfi - Breyting á 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Málsnúmer: 2504623

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 25. júní 2026 um tillögu að breytingu á ákvæðum 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem ná til stígakerfa. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Endurskoðun á kafla 4.2, tillaga dags. 11. júní 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2026.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2026 samþykkt.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 51. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 25. júní 2026 um tillögu að breytingu á ákvæðum 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem ná til stígakerfa. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Endurskoðun á kafla 4.2, tillaga dags. 11. júní 2026.

Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 21. fundur

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 3. apríl 2025 um tillögu að breytingu á ákvæðum 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem ná til stígakerfa. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Endurskoðun á kafla 4.2, vinnslutillaga dags. 13. mars 2025 og kynning vinnslutillögu á íbúafundi 2. apríl 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. apríl 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra aðalskipulags.

Þá lögð fram umsögn verkefnastjóra aðalskipulags dags. 28. apríl 2025.

Umsögn verkefnastjóra aðalskipulags dags. 28. apríl 2025, samþykkt.