Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Íþróttapúlsinn - viðhorfskönnun til foreldra varðandi íþróttaiðkun barna

Málsnúmer: 2505395

Ferill máls

01

Menntaráð - 155. fundur

Kynning á niðurstöðum íþróttapúlsins 2025.

Gunnari Guðmundssyni er þökkuð góð kynning á Íþróttapúlsinum.

Gunnar Guðmundsson kemur inn kl. 17:40

Gunnar Guðmundsson víkur af fundi kl. 17:50

02

Bæjarráð - 3235. fundur

Frá skrifstofu umbóta og þróunar, lagðar fram til kynningar niðurstöður viðhorfskönnunar vegna íþróttaiðkunar barna hjá íþróttafélögum í Kópavogi.

Lagt fram og kynnt.

Umræður.

Gestir viku af fundi kl.9:39.

03

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 6. fundur

Á fundinn mætti Jakob Sindri Þórsson, sérfræðingur í stafrænni þróun á skrifstofu umbóta og þróunar hjá Kópavogsbæ og kynnti niðurstöðu úr viðhorfskönnun til foreldra vegna íþróttaiðkun barna hjá íþróttafélögum í Kópavogi.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Jakobi Sindra Þórssyni, sérfræðingi í stafrænni þróun á skrifstofu umbóta og þróunar, fyrir góða kynningu. Nefndin lýsir yfir ánægju sinni með framkvæmd og heilt yfir jákvæðrar niðurstöðu könnunarinnar.

Jakob Sindri Þórsson, sérfræðingur, vék af fundi kl. 17:25

04

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 5. fundur

Lagðar fram til kynningar niðurstöður úr viðhorfskönnun til foreldra vegna íþróttaiðkun barna hjá íþróttafélögum í Kópavogi.

Lagt fram.

Nánari kynningu og umræðum frestað til næsta fundar.

05

Bæjarráð - 3216. fundur

Lagt fram minnisblað frá deildarstjóra íþróttadeildar varðandi samráð við fulltrúa í lýðheilsu- og íþróttanefnd í tengslum við viðhorfskönnun til foreldra varðandi íþróttaiðkun barna. Bæjarráð óskaði eftir minnisblaði á fundi sínum 08.0.2025.

Lagt fram.

06

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 4. fundur

Lagðar fram upplýsingar vegna kynningar á viðhorfskönnun til foreldra varðandi íþróttaiðkun barna í Kópavogi.

Lagt fram til kynningar.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd fagnar frumkvæðinu sem er hluti að aðgerðaráætlun menntasviðs.

07

Bæjarstjórn - 1320. fundur

Frá menntasviði, dags. 06.05.2025, lögð fram kynning á fyrirhugaðri viðhorfskönnun sem áætlað er að senda á foreldra barna í íþróttum um miðjan maí.

08

Bæjarráð - 3214. fundur

Frá menntasviði, dags. 06.05.2025, lögð fram kynning á fyrirhugaðri viðhorfskönnun sem áætlað er að senda á foreldra barna í íþróttum um miðjan maí.

Lagt fram og kynnt.

Gestur vék af fundi kl. 11:29

Umræður.

Bæjarráð óskar eftir minnisblaði frá sviðsstjóra menntasviðs um samráð vegna málsins við fulltrúa í lýðheilsu- og íþróttanefnd.