Beiðni um aðkomu Kópavogsbæjar í byggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar golfvallar GKG
Málsnúmer: 25092909
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3260. fundur
Lögð fram til samþykktar drög að þríhliða samkomulagi á milli Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar um þjónustumiðstöð klúbbsins.
Umræður
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög af samkomulagi um uppbyggingu þjónustumiðstöðvar GKG.
02
Bæjarráð - 3254. fundur
Frá bæjarstjóra, lagt fram minnisblað varðandi uppbyggingu GKG á nýrri þjónustumiðstöð golfvalla GKG í Garðabæ.
Lagt fram.
Umræður.
Fundarhlé hófst kl. 9:43, fundi fram haldið kl. 10:33
Bókun:
"Á fundi bæjarráðs 2. október 2025 samþykkti bæjarráð með öllum atkvæðum að vísa erindi GKG til umsagnar bæjarstjóra. Umsögnin á að fela í sér upplýsingar um stöðu Kópavogsbæjar og svigrúm til að verða við erindinu um uppbyggingu þjónustumiðstöðvar fyrir golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar. Því er áréttað að bæjarstjóri leggi fyrir fund bæjarráðs fjárfestingaráætlun Kópavogsbæjar til sama árabils og samningur við GKG myndi taka.
Við svona ákvörðun verður að liggja fyrir hversu mikil útgjöld fylgja fjárfestingum sem Kópavogsbær hefur þegar ákveðið og hvernig þau skiptast á málaflokka m.a. með tilliti til þess hvaða verkefni eru lögbundin og óhjákvæmileg. Einnig þarf að áætla fyrir rekstrarkostnaði þeirra mannvirkja sem Kópavogsbær reisir til eigin nota. Þá þarf að áætla hvernig skatttekjur bæjarins á tímabilinu eiga að standa undir fjárfestingarákvörðunum."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Jóhanna Pálsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir vék af fundi kl. 9:49.
Bókun:
"Þessar upplýsingar munu að sjálfsögðu allar liggja fyrir áður en samningur verður lagður fyrir til samþykktar."
Hjördís Ýr Johnson
Ásdís Kristjánsdóttir
Björg Baldursdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Bókun:
"Nauðsynlegt er að fá greiningu á getu Kópavogsbæjar til fjárfestinga á næstu árum áður en lengra er haldið."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Jóhanna Pálsdóttir
Bókun:
"Meirihlutanum þykir miður að sjá Samfylkinguna, Viðreisn og Vini Kópavogs spila pólitíska tafarleiki í þessu máli sem er aðkallandi fyrir golfklúbb GKG. Upplýsingar um áhrif á fjárfestingaráætlun verða lagðar fram þegar samningur um uppbygginguna og allar forsendur liggja fyrir til að bæjarráð geti tekið upplýsta ákvörðun."
Hjördís Ýr Johnson
Ásdís Kristjánsdóttir
Björg Baldursdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
Bókun:
"Upplýsingar eftir að samningur hefur verið gerður duga ekki til. Það er ekki tafaleikur að fara fram á upplýsingar sem eru nauðsynleg forsenda ákvörðunar."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Jóhanna Pálsdóttir
Bókun:
"Við vísum til fyrri bókana."
Hjördís Ýr Johnson
Ásdís Kristjánsdóttir
Björg Baldursdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
03
Bæjarráð - 3229. fundur
Frá Golfklúbbi Kópavogsbæjar, lögð fram beiðni um styrk vegna byggingar nýrrar þjónustumiðstöðvar við golfvöll GKG.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til umsagnar bæjarstjóra.