Hafnarbraut 17-23. Svæði 9. Drög að byggingaráformum.
Málsnúmer: 25101025
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 21. fundur
Lögð fram að nýju til afgreiðslu í samræmi við skipulagsskilmála uppfærð drög Arkís arkitekta dags. 17. október 2025, uppfærð dags. 12. desember 2025, f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 17-23 við Hafnarbraut að byggingaráformum. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur húsa og lóða fellur að viðmiðum í ákvæðum í skipulagsskilmálum Kársnes Þróunarsvæði-svæði 9 og þeim dæmum eða fyrirmyndum sem fram koma á skýringaruppdrætti deiliskipulagsins sem samþykkt var í bæjarráði Kópavogs 23. ágúst 2018 og birt í B-deild Stjórnartíðinda 10. október 2018. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 12. desember 2025 og drög að uppfærðum deiliskipulagsuppdrætti dags. 12. desember 2025.
Elín Mjöll Lárusdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið og gerði grein fyrir erindinu.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. desember 2025 eru ekki gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi á grundvelli framlagðra gagna með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Andrésar Péturssonar gegn atkvæði Helgu Jónsdóttur.
Hákon Gunnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
- Hafnarbraut 17-23. Tillaga að breyttu deiliskipulagi. 12.desember 2025 DRÖG
- Kársnes Þórunarsvæði- svæði 9. Gildandi deiliskipulag.
- Hafnabraut 17-23. Byggingaráform. Drög. 17. október 2025
- 20251212 - Hafnarbraut 17-23 - Gögn til skipulags - Breytt áform
- Kársnes Þórunarsvæði- svæði 9. Gildandi skilmálar.
- Hafnarbraut 17-23. Umsögn skipulagsdeildar. Desember 2025
02
Skipulags- og umhverfisráð - 17. fundur
Lögð fram til kynningar í samræmi við skipulagsskilmála drög Arkís arkitekta dags. 17. október 2025 fyrir hönd lóðarhafa lóðanna nr. 17-23 við Hafnarbraut að byggingaráformum. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur húsa og lóða fellur að viðmiðum í ákvæðum í skipulagsskilmálum Kársnes Þróunarsvæði-svæði 9 og þeim dæmum eða fyrirmyndum sem fram koma á skýringaruppdrætti deiliskipulagsins sem samþykkt var í bæjarráði Kópavogs 23. ágúst 2018 og birt í B-deild Stjórnartíðinda 10. október 2018. Uppdrættir í mkv. 1:100, 1:200, 1:300 og 1:500.
Arnar Þór Jónsson arkitekt frá Arkís, Hermann Georg Gunnlaugsson landslagsarkitekt frá Storð og Sandra Dís Dagbjartsdóttir sviðsstjóri hjá Verkgörðum gerðu grein fyrir erindinu.
Elín Mjöll Lárusdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.