Ósk bæjarfulltrúa, Theódóru Þorsteinsdóttur, eftir upplýsingum er varða byggingu Barnaskóla Kársness
Málsnúmer: 25112715
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3245. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 27.01.2026, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi byggingu Barnaskóla Kársness. Erindi frá bæjarfulltrúum undir máli nr. 11 og 12 eru rædd og afgreidd undir þessum dagskrárlið.
Framhald umræðu vísað til næsta fundar bæjarráðs.
Lagt fram
Umræður.
Gestir viku af fundi kl. 10:13.
Indriði I. Stefánsson vék af fundi kl. 10:30.
Fundarhlé hófst kl. 10:16, fundi fram haldið kl. 11:15
Bókun:
"Meirihlutinn telur mikilvægt að allir bæjarráðsfulltrúar séu sammála um að gætt sé trúnaðar um sundurliðanir og bráðabirgðagreiningar á kostnaði við byggingu Barnaskóla Kársness þar til kröfugerð í gerðardómsmálinu hefur verið lögð fram, líkt og kom fram í ráðleggingum lögmanns Kópavogsbæjar í málinu. Kópavogsbær hefur í kjölfar þess að riftun verksamningsins var dæmd lögmæt lagt í stórfelldan kostnað við að gera við galla á verki ítalska verktakans auk þess sem verulegur kostnaður hefur fallið til við að reka verkið í mun lengri tíma en upphaflegur samningur gerði ráð fyrir. Kópavogsbær hyggst endurheimta allan viðbótarkostnað vegna málsins og þar skiptir máli að allar tölur séu vel staðreyndar og skilgreindar."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Bókun:
"Undirrituð ítrekar enn og aftur beiðni um upplýsingar sem margsinnis hefur verið óskað eftir og fordæmir þá leyndarhyggju sem hefur átt sér stað allt frá því að samningum við aðalverktaka verksins var rift, bæði gagnvart íbúum og kjörnum fulltrúum. Undir þessu máli eru merkt trúnaðargögn en engin rök færð fyrir því hvers vegna það eigi að ríkja trúnaður um þau. Það eru meðal annars upplýsingar sem hafa áður komið fram, eru í opnu bókhaldi og jafnvel gögn sem augljóslega á ekki ríkja trúnaður um. Það eru hagsmunir íbúa Kópavogs að fá upplýsingar um hvernig farið er með opinbert fjármagn. Hægt er að gera það án þess birta nákvæmar upplýsingar um fyrirliggjandi kröfur í því dómsmáli sem framundan er."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Meirihlutinn hafnar öllum ásökunum um leyndarhyggju. Það er grundvallaratriði í eins viðamiklu gerðardómsmáli og hér um ræðir að hagsmunir Kópavogsbúa séu varðir af festu og heilindum. Fjárhagslegir hagsmunir Kópavogsbæjar af hagfelldri niðurstöðu varða verulega fjármuni.
Þess vegna telur meirihluti bæjarráðs það ekki málinu til framdráttar að gögn sem merkt eru trúnaði að ítrekuðum ráðleggingum lögmanns bæjarins hafi verið lekið í fjölmiðla.
Birting sundurliðaðra bráðabirgðatalna eða vinnuskjala á þessu stigi getur veikt stöðu bæjarins gagnvart gagnaðila og skaðað möguleika til fullrar endurheimtu kostnaðar. Þetta kemur skýrt fram í minnisblaði og máli lögmanns Kópavogsbæjar og byggir meirihlutinn afstöðu sína á þeim ráðleggingum. Þegar kröfugerð liggur fyrir verða allar upplýsingar aðgengilegar."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir
02
Bæjarráð - 3244. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 27.01.2026, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi byggingu Barnaskóla Kársness.
Erindi frá bæjarfulltrúum undir máli nr. 11 og 12 eru rædd og afgreidd undir þessum dagskrárlið.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl.9.48.
Framhald umræðu vísað til næsta fundar bæjarráðs.
03
Bæjarráð - 3238. fundur
Frá bæjarfulltrúa Viðreisnar, dags. 27.11.2025, lögð fram fyrirspurn í fimm liðum varðandi byggingu Barnaskóla Kársness.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.