Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gjaldskrár 2026

Málsnúmer: 25121476

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3259. fundur

Lagðar fram til kynningar þær gjaldskrárbreytingar sem taka gildi 1. júlí 2026.

Lagt fram.

Bókun:

"Í fjölmiðlum hafa fulltrúar meirihlutans lagt áherslu á að gjaldskrár barnafjölskyldna hækki ekki meira en sem nemur 2,5% á ársgrundvelli, í viðleitni til að vinna gegn verðbólgu. Fulltrúi Samfylkingar bendir á að gjaldskrár Kópavogs á barnafólk hafi hækkað gríðarlega á undanförnum misserum og þannig drifið verðbólguþróun áfram. Takmörkun við 2,5% nú er of lítið og of seint.

Eins bendir fulltrúi Samfylkingar á að gjaldskrá skólahljómsveitar hækki töluvert umfram téð 2,5% og skýtur það skökku við þegar áhersla er lögð á lækkun gjaldskrár barna- og fjölskyldufólks. Réttara væri að gjaldskrá skólahljómsveitar væri takmörkuð með sama hætti og leik- og grunnskólagjöld."

Jónas Már Torfason


Bókun:

"Almennt fylgir gjaldskrá fyrir þjónustu í Kópavogi verðlagi en Kópavogsbær kaus að ganga á undan með góðu fordæmi í viðleitni sinni til að hlífa barnafjölskyldum og stuðla að lægri verðbólgu að takmarka gjaldskrárhækkanir á barnafjölskyldur um 2,5% á árinu."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson

02

Bæjarráð - 3251. fundur

Lagðar fram til kynningar uppfærðar gjaldskrár sem tóku gildi 1. apríl 2026. Samhliða er lögð fram tillaga bæjarstjóra að gjaldskrárhækkanir er snúa að barnafjölskyldum í Kópavogi takmarkist við 2.5% verðbólguviðmið Seðlabanka Íslands á árinu 2026.

Lagt fram og kynnt, ásamt tillögu bæjarstjóra.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að gjaldskrárhækkanir er snúa að barnafjölskyldum í Kópavogi, leik- og grunnskólar og frístund, takmarkist við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands á árinu 2026.


Bókun:

"Undirritaðar taka undir að mikilvægt sé að halda álögum á barnafjölskyldur í lágmarki á tímum verðbólgu og hás vaxtastigs. Sú tillaga sem hér liggur fyrir ber fremur keim af almennu pólitísku viðbragði en heildstæðri forgangsröðun á grundvelli þarfa og áhrifa. Leikskólagjöldin sem fylgja Kópavogsmódelinu eru til mikilla muna hærri en í nokkru öðru sveitarfélagi. Undirritaðar leggja áherslu á að sá ójöfnuður og skortur á meðalhófi sem fylgir gjaldskrá Kópavogsmódelsins verði tekinn til endurskoðunar."

Helga Jónsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir


Bókun:

"Auðvitað er þetta pólitískt viðbragð. Sú tillaga sem hér er til umfjöllunar er liður í að bregðast við núverandi efnahagsaðstæðum. Verðbólguþróunin er mikið áhyggjuefni og ljóst að breið samstaða þarf að nást um að halda aftur af kostnaðarhækkunum þar sem það er unnt. Sveitarfélög gegna þar mikilvægu hlutverki, enda hafa ákvarðanir þeirra bein áhrif á útgjöld heimila.

Með því að takmarka gjaldskrárhækkanir sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5% verðbólguviðmið erum við að leggja okkar af mörkum til að draga úr þrýstingi á verðlag og styðja við stöðugleika á vinnumarkaði."

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Björg Baldursdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

03

Bæjarráð - 3240. fundur

Lagðar fram til kynningar uppfærðar gjaldskrár sem taka gildi 1. janúar 2026.

Lagt fram.

Umræður.