Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Þríhnúkar. Nýtt deiliskipulag. Skipulagslýsing.

Málsnúmer: 26011825

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 30. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu skipulagslýsing dags. 16. apríl 2026 fyrir nýtt deiliskipulag Þríhnúkagígs og nágrennis dags. 16. apríl 2026. Fyrirhuguð skipulagsvinna mun felast í að skapa ramma um framtíðarnýtingu svæðisins. Skipulagslýsingin var kynnt frá 14. maí til 9. júní 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartímanum ásamt samantekt umsagna.

Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.

Fundarhlé kl. 18:14, fundi fram haldið kl. 18:19.

Bókun:

„Undirrituð fagna því að hafin sé vinna við deiliskipulag fyrir Þríhnúkagíg og nágrenni. Mikilvægt er að skýr stefna liggi fyrir um framtíð svæðisins, aðgengi að því og umgjörð þeirrar ferðaþjónustu sem þar hefur verið byggð upp.

Jafnframt benda undirrituð á að umsagnir fagstofnana kalla á vandaða undirbúningsvinnu áður en lengra er haldið. Fram kemur að þörf sé á fornleifaskráningu á öllu skipulagssvæðinu auk frekari greininga á jarðminjum, náttúrufari og öðrum þáttum sem geta haft áhrif á framtíðarskipan svæðisins. Einnig þarf að skýra umfang fyrirhugaðrar uppbyggingar og þann kostnað sem kann að falla til vegna rannsókna, innviða og annarra aðgerða.

Undirrituð leggja sérstaka áherslu á að svæðið er innan vatnsverndarsvæðis höfuðborgarsvæðisins auk þess að vera innan fólkvangs og þjóðlendu. Því þarf að tryggja að vernd náttúru, landslags og vatnsauðlinda verði leiðarljós í allri skipulagsvinnu varðandi svæðið. Gæta þarf hófs í ágangi á svæðið og gera ráðstafanir til að stýra fjölda ferðamanna. Jafnframt er mikilvægt að fyrir liggi fullnægjandi mat á náttúruvá og mögulegum áhrifum jarðhræringa áður en endanlegar ákvarðanir um uppbyggingu eru teknar.“

Eydís Inga Valsdóttir og Jónas Már Torfason.

Bókun:

Miðflokkurinn samþykkir að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir Þríhnúkagíg og nágrenni. Miðflokkurinn áréttar að vanda þurfi til verka við gerð skipulags og taka skuli tillit til þeirra athugasemda sem bárust frá máls, fag og umsagnaraðilum.

Gæta þarf að ítrustu og ströngustu kröfum þegar kemur að vatnsvernd og mögulegum mengunarþáttum á svæðinu. Viðbragðsáætlun þarf að liggja fyrir, ásamt viðeigandi búnaði, ef óhöpp verða á svæðinu, hvort sem um er að ræða umhverfisslys eða slys á fólki. Einnig þarf að gæta sérstaklega að jarðraski á friðlýstu svæði. Miðflokkurinn tekur undir umsögn Umhverfistofnunar sem veitt var við heildarendurskoðun á aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 þann 3. maí 2021. Þar kemur fram að gerð aðkomuvegar og bílastæði að gígnum muni hafa veruleg, neikvæð og óafturkræfð umhverfisáhrif á svæðið. Þá muni ásýnd og upplifun á svæðinu breytast til hins verra ef farið verði í slíka framkvæmd.“

Beitir Ólafsson.

Bókun:

„Undirritaður fagnar þeirri vinnu sem nú er framundan vegna uppbyggingar og deiliskipulags við Þríhnúkagíg.

Um er að ræða spennandi verkefni sem getur skapað ný tækifæri fyrir ferðaþjónustu og útivist, en mikilvægt er að vandað verði sérstaklega vel til verka. Við alla frekari vinnu þarf að taka tillit til þeirra athugasemda og umsagna sem borist hafa frá viðeigandi stofnunum.

Sérstaklega þarf að horfa til þess að svæðið er innan vatnsverndarsvæðis höfuðborgarsvæðisins. Því verður skipulagsvinnan að byggja á skýrum faglegum forsendum þar sem vernd vatnsbóla og náttúru er tryggð.“

Pétur Björgvin Sveinsson.

Bókun:

„Meirihlutinn fagnar þeirri vinnu sem núna er hafin við gerð deiliskipulags við Þríhnúkagíg og tekur undir þær bókanir sem minnihlutaflokkarnir hafa lagt fram.“

Andri Steinn Hilmarsson, Ármann Kr. Ólafsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Samþykkt að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags á grundvelli framlagðrar skipulagslýsingar dags. 16. apríl 2026 og með hliðsjón af þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust á kynningartíma.

02

Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur

Lögð fram til afgreiðslu tillaga skipulagsfulltrúa að skipulagslýsingu dags. 16. apríl 2026 fyrir nýtt deiliskipulag Þríhnúkagígs og nágrennis. Fyrirhuguð skipulagsvinna mun felast í að skapa ramma um framtíðarnýtingu svæðisins.

Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum og gerði grein fyrir erindinu.

Samþykkt með vísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulagslýsing dags. 16. apríl 2026 verði kynnt.

03

Skipulags- og umhverfisráð - 24. fundur

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 þar sem óskað er eftir heimild skipulags- og umhverfisráðs til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Þríhnúka og nærliggjandi svæði, í samræmi við gildandi aðalskipulag Kópavogs. Markmið deiliskipulagsvinnunnar er að skapa ramma um framtíðarnýtingu svæðisins.

Ester Annar Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.

Samþykkt með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Kristins Dags Gissurarsonar að hafin verði vinna við gerð nýs deiliskipulags fyrir Þríhnúka. Gunnar Sær Ragnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Helga Jónsdóttir vék af fundi kl. 18:47.