Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skjólbraut 5. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 26022745

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 46. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Braga Blumenstein arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut. Sótt er um byggingarleyfi fyrir að hækka þak hússins og setja tvo kvisti á þakið, einn að norðanverðu og annan að sunnanverðu að Skjólbraut 5. Birt flatarmál eykst um 36,7 m², úr 139,6 m² í 176,3 m². Nýtingarhlutfallið hækkar úr 0,19 í 0,24. Uppdrættir dags. 24. janúar 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 15. apríl 2026 til 17. maí 2026, engar athugasemdir bárust.

Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 43. fundur

Lagt fram að nýju, ásamt uppfærðri umsögn skipulagsfulltrúa, erindi byggingarfulltrúa dags. 13. mars 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Braga Blumenstein arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að hækka þak hússins og setja tvo kvisti á þakið, einn að norðanverðu og annan að sunnanverðu að Skjólbraut 5. Birt flatarmál eykst um 36,7 m², úr 139,6 m² í 176,3 m². Nýtingarhlutfallið hækkar úr 0,19 í 0,24. Uppdrættir dags. 24. janúar 2026. Jafnframt lögð fram uppfærð umsögn dags. 9. mars 2026, með leiðréttingum dags. 13. apríl 2026.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Skjólbraut nr. 3, 3A, 7, 7A, 4, 6, og 8.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 42. fundur

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 13. mars 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Braga Blumenstein arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að hækka þak hússins og setja kvisti á þakið, einn að norðanverðu og annan að sunnanverðu að Skjólbraut 5. Uppdrættir dags. 24. janúar 2026.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Skjólbraut nr. 3, 3A, 7, 7A, 4, 6, og 8. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

04

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 41. fundur

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut. Sótt er um kvist á norður- og suðurhlið hússins og hækkun á þaki. Uppdrættir dags. 24. janúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn dags. 9. mars 2026.

Ekki eru skipulagslegar athugasemdir við erindið. Grenndarkynna þarf byggingarleyfisumsóknina.

05

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 40. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 vegna byggingarleyfisumsóknar lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut. Sótt er um að setja kvist á norður- og suðurhlið hússins og hækka þakið. Uppdrættir dags. 24. janúar 2026.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.