Fyrirspurn frá öllum oddvitum minnihlutans. Hvaða innstreymi hefur verið í bæjarsjóð vegna byggingarréttargjalda og annarra lóðagjalda
Málsnúmer: 26031363
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3255. fundur
Frá deildarstjóra greiningardeildar, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi innstreymi vegna byggingarréttargjalda og annarra ólögbundinna lóðagjalda frá árinu 2023.
Umræður
Lagt fram.
Endurskoðað svar verður lagt fram á næsta fundi í samræmi við umræður.
Gestir viku af fundi kl. 9:03.
02
Bæjarráð - 3249. fundur
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn frá fulltrúum Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og Vina Kópavogs:
Hvaða innstreymi hefur verið í bæjarsjóð Kópavogs vegna byggingarréttargjalda og annarra ólögbundinna lóðagjalda frá árinu 2023. Hvert hefur innstreymið verið vegna gatnagerðargjalda og annarra lögbundinna lóðagjalda á sama tímabili? Upplýsinga er óskað skipt eftir árum þ.m.t. vegna ársins 2026.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar áhættu- og fjárstýringarstjóra.